
Sex Íslendingar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna umfangsmikillar rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fíkniefnamisferli og peningaþvætti. Lögregla réðist í umfangsmiklar aðgerðir á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu og lagði hald á bæði fíkniefni og fjármuni. Húsleitir voru framkvæmdar á nokkrum stöðum og voru nokkrir handteknir í aðgerðunum.
Sex í gæsluvarðhald fram á föstudag
Sex þeirra sem lögregla handtók voru leiddir fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gær.
Dómurinn úrskurðaði þá alla í gæsluvarðhald og gilda úrskurðirnir fram á föstudag. Allir 6 eru íslenskir ríkisborgarar.
Rannsóknin beinist að fíkniefnamisferli og peningaþvætti en ekki kemur fram hvers konar eða hversu mikið magn fíkniefna var lagt hald á.
Ekki kemur heldur fram hversu háa fjárhæð lögregla lagði hald á í aðgerðunum.
Rannsóknin mjög umfangsmikil
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir rannsókn málsins mjög umfangsmikla.
Vegna rannsóknarhagsmuna er ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
