Sigmundur: Reynt að endurskrifa söguna um afturköllun ESB-umsóknarinnar

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, nefndarmann í utanríkismálanefnd og fyrrverandi forsætisráðherra, í síðdegisútvarpinu í dag, um stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu. Sigmundur sagði nú reynt að endurskrifa söguna með því að halda því fram að ríkisstjórn hans hefði ekki dregið umsóknina til baka. Hann sagði formlega tilkynningu hafa verið senda ESB og Evrópusambandið hefði í kjölfar þess hætt að flokka Ísland sem umsóknarríki. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Sömu aðilar brugðust harkalega við á sínum tíma

Arnþrúður vísaði til ummæla Pawels Bartoszek, formanns utanríkismálanefndar, um að ríkisstjórn Sigmundar hefði ekki dregið umsóknina frá 2009 til baka og spurði hvort þar væri verið að horfa fram hjá staðreyndum.

Sigmundur sagði það lýsandi að sömu aðilar og nú, héldu því fram að umsóknin hefði ekki verið dregin til baka, hefðu brugðist harkalega við þegar ríkisstjórn hans tilkynnti ákvörðunina. Fyrst hefði formleg tilkynning verið send Evrópusambandinu og síðar hefði hann sjálfur farið til Brussel sem forsætisráðherra til að tryggja að enginn vafi léki á stöðu Íslands.

Ísland hætti að vera flokkað sem umsóknarríki

Sigmundur sagði niðurstöðuna hafa verið skýra. Ísland hefði ekki lengur verið flokkað sem umsóknarríki, hvorki með umsókn í bið né umsókn sem hafi verið fryst.

Hann sagði þetta hafa legið fyrir árum saman af hálfu Evrópusambandsins sjálfs. Því væri sérstaklega athyglisvert að nú væri reynt að túlka atburðarásina með öðrum hætti en gert hefði verið þegar ákvörðunin var tekin.

Segir staðreyndir víkja fyrir nýrri frásögn

Sigmundur sagði umræðuna dæmi um hvernig óþægilegar staðreyndir væru látnar víkja þegar þær féllu ekki að þeirri frásögn sem nú væri sett fram um aðildarferlið.

Hann tengdi þetta við fyrirhugaða endurupptöku viðræðna og sagði samningsviðmið ESB frá fyrra ferli áfram skipta máli. Ef viðræðurnar yrðu teknar upp að nýju væri því ekki verið að byrja með autt blað heldur halda áfram ferli sem ætti rætur að rekja til umsóknarinnar um fulla aðild að Evrópusambandinu frá 2009 og undirrituð af Jóhönnu Sigurðardóttur og Össuri Skarphéðinssyni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila