
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um stöðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Sigmundur Davíð telur Þorgerði Katrínu skorta traust stórs hluta þjóðarinnar og segir það ekki sýna niðurstöðunni næga virðingu að hún gegni áfram sama hlutverki. Hann leggur til að Þorgerður Katrín og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra víxli ráðuneytum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Staða Þorgerðar gagnvart ESB
Sigmundur Davíð sagði ríkisstjórnina standa frammi fyrir praktísku vandamáli eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hann spurði hvernig Þorgerður Katrín gæti staðið vörð um hagsmuni Íslands gagnvart Evrópusambandinu og hafið samskipti við sambandið á nýjum grunni, eftir það sem hún hefði sagt í Brussel og þátttöku hennar í þeirri vegferð sem miðaði að því að koma Íslandi inn í ESB.
Hann lagði því til að Þorgerður Katrín og Daði Már Kristófersson, víxluðu ráðuneytum. Daði Már tæki þá við utanríkisráðuneytinu og Evrópumálunum. Með því kæmi nýr ráðherra að málaflokknum sem væri ekki búinn að segja jafn mikið í Brussel eða taka þátt í þeirri vegferð sem hefði átt sér stað.
Skortir traust stórs hluta þjóðarinnar
Í kjölfar þessara orða spurði Arnþrúður hvort Sigmundur Davíð væri með þessu að segja að Þorgerður Katrín nyti ekki lengur trausts þjóðarinnar.
Sigmundur Davíð svaraði að hann teldi hana skorta traust stórs hluta þjóðarinnar. Hann lagði jafnframt áherslu á að málið væri praktískt. Það auðveldaði ekki lausn málsins og sýndi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar ekki næga virðingu að Þorgerður Katrín gegndi áfram sama hlutverki eftir allt sem á undan væri gengið.
Þorgerður fái að glíma við skattalækkanir
Sigmundur Davíð sagði Þorgerði Katrínu geta tekið við fjármála- og efnahagsráðuneytinu ef hún og Daði Már Kristófersson víxluðu ráðuneytum. Þar gæti hún reynt að sanna að alvara hefði verið að baki loforðum um lægri skatta.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
