Sigurjón: 50.000 tonna aukning í þorskveiðum gæti skilað 50 milljörðum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigurjón Þórðarson þingmann Flokks fólksins, formann fjárlaganefndar Alþingis og líffræðing í Síðdegisútvarpinu um fiskveiðiráðgjöf og nýtingu sjávarauðlindarinnar. Sigurjón sagði að 50.000 tonna aukning í þorskveiðum gæti skilað þjóðinni um 50 milljörðum króna í hreinar útflutningstekjur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Þorskstofninn endurmetinn niður um 267.000 tonn

Arnþrúður vakti máls á fréttum um minnkandi loðnukvóta og spurði hvort Ísland væri að missa frá sér tekjur vegna þeirrar þróunar.

Sigurjón hafði skömmu áður fundað með Hafrannsóknastofnun um loðnuna. Hann sagði stofnunina hafa tekið upp nýja reglu árið 2015 sem gæfi að jafnaði minni afla en eldri reglan og munaði þar nokkrum tugum þúsunda tonna á ári.

Hann sagði jafnframt ástæðu til að endurskoða hvernig mælingar og stofnstærðir væru metnar. Sem dæmi nefndi hann þorskstofninn sem hefði árið 2019 mælst 1.402.000 tonn en síðar verið endurmetinn niður í rúmlega 1.100.000 tonn.

Munurinn væri 267.000 tonn og Sigurjón benti á að það væri meira magn en gert væri ráð fyrir að veiða af þorski á þessu ári.

50 milljarðar í útflutningstekjur

Sigurjón sagði að ef þorskveiðar yrðu auknar um 50.000 tonn gæti það þýtt um 50 milljarða króna í hreinar útflutningstekjur fyrir þjóðarbúið.

Hann lagði þó áherslu á að með þessu væri hann ekki að leggja til að horfið yrði frá aðhaldi við fiskveiðar. Það þyrfti áfram að gæta að stofnunum en jafnframt þyrfti að fara betur yfir tölurnar og þá aðferðafræði sem ráðgjöfin byggðist á.

Slíkar auknar útflutningstekjur gætu að hans mati jafnframt létt undir með ríkisfjármálunum.

Vill setja nýtingu í meiri forgang

Arnþrúður spurði hvort það ætti að breyta fyrirkomulaginu hjá Hafrannsóknastofnun.

Sigurjón sagði kominn tíma til að setja nýtingu sjávarauðlindarinnar í meiri forgang. Hafrannsóknastofnun væri að hans mati farin að líkjast meira verndarstofnun en nýtingarstofnun.

Hann benti á að ráðherra væri ekki bundinn af ráðgjöf stofnunarinnar og nefndi djúpkarfa sem dæmi þar sem veiðiheimildir hefðu verið gefnar út þótt ráðgjöfin hefði gert ráð fyrir engum veiðum.

Evrópusambandið vill aukna vernd hafsins og minni veiðar

Arnþrúður vakti einnig máls á þeirri áherslu sem kæmi frá Evrópusambandinu á aukna vernd hafsins og minni veiðar. Sigurjón sagði ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og þá ráðgjöf sem Evrópusambandið fylgdi hafa verið eina af ástæðum þess að hann hefði sagt nei við áframhaldandi aðildarviðræðum við ESB.

Hann sagði aflann hafa farið niður í fjölmörgum tegundum og taldi fulla ástæðu til að endurskoða þá aðferðafræði sem nú væri notuð.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila