Sigurjón vill endurskoða lög um Seðlabankann

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Sigurjón Þórðarson, þingmann Flokks fólksins og formann fjárlaganefndar í síðdegisútvarpinu í dag, um ákvörðun Seðlabanka Íslands að hækka stýrivexti um 0,25%. Fram kom í þættinum að tilefni væri til að skoða lög um Seðlabankann upp á nýtt og velta fyrir sér hvort núverandi fyrirkomulag peningastefnunnar væri að skila þeim árangri sem stefnt væri að. Sigurjón gagnrýndi sérstaklega að stýrivextir hér á landi væru mun hærri en í nágrannaríkjum þrátt fyrir sambærilega verðbólgu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vill meiri umræðu um hlutverk Seðlabankans

Í viðtalinu kom fram að Seðlabankinn hefði að mestu treyst á stýrivexti sem aðalverkfæri sitt í baráttunni við verðbólgu, en Sigurjón telur að skoða þyrfti hvort bankinn ætti að hafa önnur úrræði til ráðstöfunar eða meira svigrúm í framkvæmd peningastefnu.

Eitt af því sem kom fram í máli Sigurjóns var að mögulega þyrfti að endurskoða verðbólgumarkmið Seðlabankans og hvort 2,5% markmiðið væri of stíft við íslenskar aðstæður. Að hans mati mætti ekki ganga svo langt í vaxtahækkunum að þær valdi samdrætti og stöðnun í hagkerfinu. Jafnframt bæru stjórnvöld ábyrgð á því að meta hvort núverandi skipulag Seðlabankans væri heppilegt og hvort lögin frá árinu 2002 hefðu þróast í þá átt sem ætlast var til þegar bankanum var veitt aukið sjálfstæði gagnvart stjórnvöldum.

Vaxtahækkanir vinna gegn húsnæðisuppbyggingu

Í viðtalinu gagnrýndi Sigurjón nýjustu vaxtahækkunina harðlega og sagði hana koma á tíma þegar þegar væru merki um samdrátt í hagkerfinu. Hann vísaði meðal annars til minni kortaveltu og erfiðleika í byggingariðnaði. Að mati Sigurjóns væru háir vextir farnir að hafa bein neikvæð áhrif á húsnæðismarkaðinn þar sem þeir drægju úr nýframkvæmdum og gerðu fólki erfiðara að fjármagna íbúðakaup. Hann sagði hættu á að áframhaldandi vaxtahækkanir myndu auka húsnæðisskort frekar en leysa vandann.

Þá vísaði Sigurjón til þess að verðbólgan ætti að stórum hluta rætur að rekja til ytri þátta eins og hækkandi olíuverðs og alþjóðlegra átaka. Hann efaðist um að vaxtahækkanir á Íslandi gætu haft teljandi áhrif á slíkar aðstæður.

Gagnrýnir þátttöku Seðlabankastjóra í launaumræðu

Sigurjón gagnrýndi einnig að Seðlabankastjóri hefði ítrekað tjáð sig um launamál og kjarasamninga. Hann sagði bankastjórann hafa tekið að sér hlutverk sem líktist „launalögreglu“ og taldi að embættið ætti fremur að einbeita sér að kjarnahlutverki sínu í peningamálum. Jafnframt væri það það svo að undirliggjandi vandamál í íslensku hagkerfi tengdust ekki eingöngu launahækkunum heldur einnig skorti á samkeppni og takmörkuðu framboði á húsnæði. Því þyrfti að ráðast í víðtækari aðgerðir en einungis að hækka stýrivexti.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila