
Arnþrúður Karlsdóttir var á vaktaskiptum við Pétur Gunnlaugsson í símatímanum í morgun á Útvarpi Sögu þegar þau tíðindi bárust að nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar í Reykjavík hafi verið myndaður til þess að stjórna borginni næstu 4 árin. Arnþrúður sagði að það hafi verið Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sem hafi unnið sveitastjórnarkosningarnar á landsvísu. Kjósendur hafi sameinast í þeirri trú að Guðrún myndi færa flokkinn aftur, nær sínum hefðbundnum gildum og hafna því að flokkurinn tæki í auknum mæli upp erlenda stefnu eins og vókstefnu og ýmsa “isma” sem hefðu verið ráðandi í stefnu Reykjavíkurborgar síðustu árin og haft í för með sér eyðileggingu á margvíslegan hátt. Kosningarnar hafi snúist um að losna undan þeirri stefnu en nú yrði að öllum líkindum haldið áfram á þeirri afleitu leið með samstarfi með Viðreisn og Framsóknarflokks. Þessi ákvörðun Sjálfstæðisflokksins í borginn kæmi á óvart og gæti skemmt fyrir Guðrúnu.
Arnþrúður sagði Guðrúnu hafa talað fyrir því að byggja upp „gamla góða Sjálfstæðisflokkinn“ og að kjósendur hefðu brugðist við þeim skilaboðum með því að skila flokknum sterkum sigri í kosningunum. Margir stuðningsmenn flokksins hlytu því að líta á nýtt meirihlutasamstarf í Reykjavík sem mikil vonbrigði.
Þá gagnrýndi hún sérstaklega að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi ekki nýta tækifærið til að mynda meirihluta með Miðflokki sem vildi alvöru breytingar í borgarmálum. Að hennar mati hefði verið eðlilegra að mynda meirihluta sem ætlaði að ráðast í umfangsmiklar breytingar í Reykjavík eftir þá gagnrýni sem komið hefði fram á síðustu árum.
Í því sambandi nefndi hún umferðarmál, samgöngur, þéttingu byggðar og bílastæðaskort sem helstu ágreiningsefni borgarbúa. Hún sagði bílastæðaskort orðinn mjög alvarlegt vandamál í Reykjavík og rifjaði upp að Hildur Björnsdóttir hefði áður talað fyrir því að endurskoða Borgarlínuna og skoða hagkvæmari lausnir í samgöngumálum.
Arnþrúður sagði Borgarlínuna og þéttingu byggðar vera nátengd verkefni þar sem uppbygging fasteigna væri skipulögð meðfram fyrirhuguðum samgönguásum þar sem verð á íbúðum yrði mjög hátt.
Í umræðunni benti hún einnig á tengsl einstakra fulltrúa meirihlutans við RÚV. Hún nefndi að bæði Einar Þorsteinsson og Björg Magnúsdóttir hefðu starfað hjá ríkisútvarpinu og sagði að það gæti haft áhrif á fréttaflutning og gagnrýna umræðu um nýjan meirihluta á næstu 4 árum og í raun væri ekki á það bætandi.
Hlusta má á umræuna hér að neðan
