Sjálfstæð hagstjórn gríðarlega mikilvæg fyrir íslenskt efnahagslíf

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Snorra Másson, þingmann og varaformann Miðflokksins í síðdegisútvarpinu um efnahagsleg áhrif mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Í viðtalinu hélt Snorri því fram að sjálfstæð peningastefna og eigin gjaldmiðill væru mikilvæg tæki fyrir Ísland og umræðan um Evrópusambandið væri oft of þröng þegar hún snerist eingöngu um vexti og evru. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vextir ekki eina mælistikan

Snorri sagði að stuðningsmenn Evrópusambandsaðildar legðu gjarnan áherslu á að vextir væru lægri innan evrusvæðisins en á Íslandi. Hann taldi hins vegar að slík umræða gæfi ófullnægjandi mynd af stöðu mála þar sem hún tæki ekki tillit til annarra þátta hagkerfisins, svo sem atvinnustigs, launaþróunar og almennra tækifæra á vinnumarkaði.

Ekki væri hægt að meta kosti eða galla Evrópusambandsaðildar út frá einum hagstærðarþætti. Þjóðir sem byggju við lægri vexti gætu á sama tíma glímt við meira atvinnuleysi og veikari hagvöxt.

Krónan mikilvægur sveiflujafnari

Í umræðunni lagði Snorri áherslu á að íslenska krónan gerði stjórnvöldum kleift að bregðast við áföllum sem reglulega skekja lítið og opið hagkerfi. Hann nefndi að breytingar í sjávarútvegi, ferðaþjónustu eða öðrum lykilatvinnugreinum gætu haft meiri áhrif á Ísland en sambærileg áföll hefðu í stærri ríkjum.

Með eigin gjaldmiðli og sjálfstæðri peningastefnu væri unnt að laga hagstjórn að aðstæðum hverju sinni. Hann taldi að þessi sveigjanleiki hefði reynst mikilvægur í gegnum tíðina og væri einn af kostum íslenska hagkerfisins.

Gagnrýnir sameiginlega peningastefnu ESB

Snorri vísaði til reynslu ríkja innan evrusvæðisins og sagði að sameiginleg peningastefna gæti reynst illa þegar aðstæður aðildarríkja væru mjög ólíkar. Hann nefndi meðal annars að ríki gætu lent í samdrætti eða atvinnuleysi án þess að hafa sjálf yfir þeim hagstjórnartækjum að ráða, sem nauðsynleg væru til að bregðast við stöðunni.

Þetta væri sérstaklega mikilvægt fyrir Ísland þar sem hagkerfið væri lítið og sérhæft. Hann taldi að sjálfstæð peningastefna og möguleikinn til að móta efnahagsaðgerðir út frá íslenskum aðstæðum væru mikilvægir þættir í að verja atvinnu, tekjur og stöðugleika þegar efnahagsáföll dynja yfir.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila