Sjálfstæðisflokkurinn nærri 10% yfir Samfylkingu í nýrri könnun

Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir borgarstjórnarkosningarnar og er með tæplega 10 % forskot á Samfylkinguna. Á sama tíma bætir Vinstrið mest við sig milli mælinga á meðan Miðflokkurinn missir mest fylgi.

Sjálstæðisflokkurinn leiðir og Samfylking næststærst

Könnunin var framkvæmd dagana 29. apríl til 6. maí og sýna niðurstöðurnar að Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 27,9 % fylgi í borginni. Samfylkingin mælist næst stærst með 18 %.

Vinstrið bætir við sig

Vinstrið mælist með 13,2 % fylgi og er sá flokkur sem eykur fylgi sitt mest frá fyrri könnun. Viðreisn mælist með 12,6 %.

Miðflokkurinn tapar mestu á milli mælinga.

Miðflokkurinn fær 6,7 % fylgi samkvæmt könnuninni og tapar mestu fylgi milli mælinga. Framsókn mælist með 5,7 % og Sósíalistaflokkurinn með 5,1 %.

Aðrir með minna fylgi

Píratar mælast með 4,9 % fylgi, Flokkur fólksins 2,8 % og Okkar borg 1,6 %.

Könnun Maskínu var framkvæmd dagana 29. apríl til 6. maí.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila