
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Vilhjálm Árnason, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og þingmann flokksins í síðdegisútvarpinu í dag um húsnæðisuppbyggingu, skipulagsmál og framtíðarsýn flokksins fyrir Reykjanesbæ. Þar kom fram að Sjálfstæðisflokkurinn vilji hverfa frá þeirri þéttingarstefnu sem núverandi meirihluti hafi fylgt og leggja í staðinn áherslu á fjölgun lóða fyrir einbýlishús, raðhús og parhús í Keflavík, Njarðvík og á Ásbrú. Þeir ætli sér að hætta blokkauppbyggingu eins og verið hefur. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Íbúar kalla eftir breytingum í skipulagsmálum
Vilhjálmur sagði að eitt stærsta málið sem hann fyndi fyrir í samtölum við íbúa væri óánægja með umfang fjölbýlishúsa og þéttingar í bænum. Að hans mati hafi uppbygging undanfarinna ára farið of mikið í blokkahverfi á meðan framboð lóða fyrir sérbýli hafi ekki fylgt eftir fólksfjölgun og aukinni eftirspurn fjölskyldna. Hann sagði flokkinn vilja opna fleiri sérbýlislóðir og skapa aðstæður þar sem ungt fjölskyldufólk gæti byggt eigið húsnæði á hagkvæmari forsendum. Vilhjálmur sagði að markmiðið væri að fólk sem hefði efni á íbúð í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu, gæti í staðinn keypt sér raðhús eða parhús í Reykjanesbæ.
Í viðtalinu gagnrýndi hann jafnframt það sem hann kallaði „blokkastefnu“ sveitarfélagsins og sagði hana hafa aukið álag á umferð, skóla og innviði án þess að sveitarfélagið fengi sambærilegar tekjur til mótvægis.
Lækka ætti lóða- og innviðagjöld
Vilhjálmur sagði lóðaverð og innviðagjöld hafa hækkað byggingarkostnað verulega á síðustu árum. Hann gagnrýndi sérstaklega ný innviðagjöld sem samþykkt hafa verið í Reykjanesbæ og sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja afnema þau. Sveitarfélagið ætti fremur að leggja áherslu á að fá fleiri íbúa og fleiri fyrirtæki til bæjarins í stað þess að treysta á há gjöld við lóðaúthlutun. Að hans mati leiði há gjöld til þess að húsnæðisverð hækki enn frekar þar sem kostnaðurinn lendi að lokum á kaupendum.
Jafnframt sagði hann að lóðaleiga í Reykjanesbæ væri hærri en víða annars staðar á landinu og kerfið væri orðið flókið þar sem mismunandi aðilar innheimtu gjöld eftir ólíkum reglum. Hann sagði að ný bæjarstjórn þurfi að samræma kerfið og einfalda það.
Vill laða fjölskyldufólk aftur til Suðurnesja
Í viðtalinu sagði Vilhjálmur að margir íbúar á Suðurnesjum hefðu áhyggjur af því að börn þeirra flyttu með fjölskyldur sínar á höfuðborgarsvæðið vegna húsnæðisskorts og skorts á fjölbreyttu framboði. Markmið flokksins væri að byggja upp fjölskylduvænt samfélag með öflugum leikskólum, grunnskólum og íþróttastarfi samhliða nýjum íbúðahverfum. Að hans mati væri það lykillinn að halda ungu fólki í bænum og laða að nýja íbúa með hærri tekjur og sterkari tengingu við atvinnulífið á Suðurnesjum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
