
Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu í síðdegisútvarpinu um áhrif aðildar Íslands að Evrópusambandinu á sjávarútveg og nýtingu náttúruauðlinda. Þau sögðu umræðuna um aðild ekki snúast aðeins um efnahagsmál heldur einnig um hver færi með ákvörðunarvald yfir fiskveiðum og öðrum auðlindum landsins. Hvalveiðar yrðu bannaðar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
ESB tæki ákvarðanir um fiskveiðar
Arnþrúður og Pétur ræddu að 200 mílna fiskveiðilögsagan hefði verið ein mikilvægasta forsenda þess að Ísland gæti byggt upp öflugan sjávarútveg. Með lögsögunni hefðu ekki aðeins fylgt réttindi heldur einnig skyldur um verndun og sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar.
Aðild að Evrópusambandinu myndi fela í sér þátttöku í sameiginlegri fiskveiðistefnu sambandsins. Þar með yrðu ákvarðanir um nýtingu fiskistofna ekki lengur eingöngu í höndum íslenskra stjórnvalda heldur háðar reglum og ákvörðunum á vettvangi Evrópusambandsins.
Reynsla Írlands aðvörun fyrir Ísland
Arnþrúður og Pétur vísuðu til reynslu Írlands af sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. Fram kom að væntingar um undanþágur hefðu ekki gengið eftir og að reglur sambandsins hefðu síðar tekið gildi að fullu.
Fram kom að undanþágur sem ræddar væru í tengslum við aðildarsamninga snerust oft um tímabundnar lausnir eða frestun á innleiðingu reglna fremur en varanlegar undantekningar frá sameiginlegu regluverki.
Paul Watson á leiðinni til að trufla hvalveiðar
Arnþrúður og Pétur ræddu ákvörðun Svandísar Svavarsóttur um ólögmætar takmarkanir á hvalveiðum og þau áhrif sem þær höfðu á atvinnugreinina.
Þau rifjuðu einnig upp að Paul Watson hefði um áratugaskeið verið einn þekktasti andstæðingur hvalveiða á heimsvísu og hann hefði áður komið að aðgerðum gegn íslenskum hvalveiðum. Watson vann skemmdarverk á hvalveiðibátum árið 1986 og Watson væri nú á leið til Íslands á ný í þeim tilgangi að trufla hvalveiðar með einhverjum hætti eins og hann sjálfur hefur sent frá sér.
Að mati Arnþrúðar og Péturs væri ekki um táknræna heimsókn að ræða heldur kæmi Watson hingað til að halda áfram baráttu sinni gegn íslenskum hvalveiðum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
