Skák á fullt erindi í skólakerfið

Kristján Örn Elíasson ræddi við Sveinbjörn Jónsson, Súgfirðing, áhugaskákmann og fyrrverandi trillukarl, í þættinum Við skákborðið um skákkennslu og reynslu hans af því að leiðbeina börnum á Vestfjörðum. Sveinbjörn sagði skák eiga fullt erindi í skólakerfið þar sem hún þjálfi hugsun, aga og færni sem geti nýst nemendum í námi og lífinu almennt. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Skákin þjálfar hugsun og aga

Sveinbjörn sagði reynslu sína vera þá að þeir sem lærðu undirstöðuatriði skákar og hefðu ánægju af leiknum stæðu sig gjarnan ágætlega í lífinu.

Skákin kenndi fólki að átta sig á því hvað þyrfti að læra og hvað þyrfti að þjálfa. Ekki væri hægt að láta hlutina einfaldlega reka á reiðanum ef maður vildi bæta sig.

Kristján benti á að ákveðinn agi fælist í þessu og Sveinbjörn tók undir það. Skákin kenndi ákveðna hugsun og við skákborðið yrði ekki deilt við rökin þegar niðurstaðan lægi fyrir.

Áföll hluti af leiknum

Skákin hefur að hans mati einnig þann eiginleika að kenna fólki að takast á við mótlæti.

Sveinbjörn sagði jákvætt viðhorf mikilvægt en jafnframt þyrfti að læra að áföll væru stundum einfaldlega hluti af leiknum. Þegar einn leikur væri búinn tæki sá næsti við og hið sama mætti að mörgu leyti segja um lífið.

Þannig væri skákin ekki aðeins keppni heldur einnig æfing í því að meta stöðuna, læra af mistökum og halda áfram.

Fór á milli skóla á Vestfjörðum

Sveinbjörn starfaði við kennslu og skákleiðsögn á Vestfjörðum í um 9 eða 10 ár. Hluti starfsins fólst í því að ferðast á milli skóla og byggðarlaga og kynna börnum skákina.

Ferðirnar gátu verið erfiðar yfir vetrartímann þegar farið var yfir vestfirskar heiðar í hálku en hann lýsti þessum árum sem mikilli lífsreynslu.

Hann rifjaði sérstaklega upp góðar móttökur í Bolungarvík þegar skákkrakkar komu þangað í heimsókn. Kristján benti á að þar hefði lengi verið sterk skákhefð og Sveinbjörn tók undir það og sagði ákveðnar fjölskyldur hafa ræktað skákina kynslóð fram af kynslóð.

Fjöltefli og keppni hluti af kennslunni

Sveinbjörn kenndi meðal annars í barnaskólanum á Suðureyri frá 1975 til 1984. Hann fékk einnig aðstoð annarra við skákkennsluna og nefndi sérstaklega Sigurð Ólafsson sem tók oft þátt.

Kennslan var ekki aðeins bókleg. Börnin fengu að tefla, taka þátt í fjölteflum og keppa hvert við annað með tilsögn.

Hann sagði þá sem tóku þátt hafa haft mikla ánægju af þessu og hafði síðar oft fengið að heyra að fólki hefði þótt skákstarfið skemmtilegt.

Sveinbjörn taldi skák geta þjálfað ákveðna eiginleika sem suma nemendur vantaði í hefðbundnu skipulögðu námi og sagði reynslu sína vera þá að góður skákmaður og góður námsmaður færu oft saman.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila