Skattheimta á ferðamenn í Gullna hringnum óraunhæf tekjuáætlunum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson, þingmann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, í síðdegisútvarpinu í dag, um skattlagningu ferðaþjónustunnar og tekjuáætlanir ríkisstjórnarinnar. Guðlaugur Þór varaði við áformum um að innheimta 7 milljarða króna með nýrri skattlagningu ferðamanna og dró í efa að tekjurnar yrðu jafn miklar og stjórnvöld gera ráð fyrir. Þarna væri verið beina skattheimtu á ferðamenn sem færu Gullna hringinn og Arnþrúður spurði hvort skattalögin heimiluðu að tiltekið svæði væri skattlagt með þessu hætti. Hann sagði reynsluna af öðrum skattabreytingum sýna að tekjur ríkissjóðs gætu orðið mun minni en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Gera ráð fyrir óbreyttum ferðamannafjölda þrátt fyrir hærri gjöld

Guðlaugur Þór setti spurningarmerki við þær forsendur ríkisstjórnarinnar að ný skattlagning á heimsóknir ferðamanna á vinsæla áfangastaði myndi ekki hafa áhrif á aðsóknina.
Hann tók Gullna hringinn sem dæmi og benti á að í áætlunum stjórnvalda væri gert ráð fyrir að jafnmargir ferðamenn heimsæktu svæðið fyrir og eftir að nýju gjöldin tækju gildi.

Forsendur óraunhæfar

Slíkar forsendur væru óraunhæfar að hans mati. Hærri ferðakostnaður gæti haft áhrif á ákvarðanir ferðamanna og þar með þær tekjur sem ríkissjóður fengi af gjaldtökunni.

Fyrirhuguð skattheimta næmi 7 milljörðum króna, þótt áður hefði verið gert ráð fyrir mun lægri fjárhæðum vegna uppbyggingar aðstöðu á ferðamannastöðum. Arnþrúður sagðist efast um að það væri heimilt samkvæmt skattalögum að beita skattlagningu með þessum hætti og mismuna atvinnurekendum eftir ákveðnum svæðum.

Fyrri tekjuáætlanir hafa ekki gengið eftir

Guðlaugur Þór rifjaði upp nokkrar skattabreytingar þar sem tekjur ríkisins hefðu orðið minni en áætlað var.
Við breytingar á vörugjöldum af bifreiðum hefðu stjórnvöld gert ráð fyrir að kauphegðun almennings héldist óbreytt þrátt fyrir hærri álögur. Niðurstaðan hefði hins vegar orðið sú að aðeins um 50% af áætluðum tekjum skiluðu sér.

Hann nefndi einnig veiðigjöldin, þar sem gert hefði verið ráð fyrir 7,5 milljörðum króna í tekjur en innheimtan aðeins skilað um 60% af þeirri fjárhæð.

Sambærileg frávik hefðu komið fram við innheimtu kílómetragjalds, þar sem tekjurnar hefðu samkvæmt umfjöllun hans numið um 90% af áætlun.

Þessi dæmi sýndu að stjórnvöld gætu ekki gengið út frá því að nýir skattar breyttu engu um hegðun einstaklinga og fyrirtækja.

Hærri álögur veikja samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar

Guðlaugur Þór lagði áherslu á mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir íslenskt efnahagslíf og sagði hana þegar skila ríkissjóði miklum skatttekjum.

Bandaríski markaðurinn væri sérstaklega verðmætur, enda hefðu bandarískir ferðamenn mikla kaupgetu og væru mikilvægir viðskiptavinir íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja. Með aukinni skattheimtu væri hætta á að Ísland yrði dýrari áfangastaður og samkeppnisstaða landsins gagnvart öðrum ferðamannalöndum versnaði.

Hann rifjaði upp fyrri umræðu um náttúrupassa og þá uppbyggingu sem síðan hefði átt sér stað á fjölförnum ferðamannastöðum. Þar hefðu meðal annars verið byggð bílastæði og salernisaðstaða og komið á sérstakri tekjuöflun vegna nýtingar staðanna.

Ný gjaldtaka þyrfti því að taka mið af þeim tekjustofnum sem þegar væru fyrir hendi.

Skattar hækka á sama tíma og framlög til vegamála dragast saman

Guðlaugur Þór fjallaði einnig um tengsl skattheimtu og fjármögnunar samgöngumannvirkja.

Upphafleg hugsun með breytingum á gjaldtöku hefði verið að þeir sem nýttu vegakerfið greiddu fyrir notkun þess. Á móti ætti þá að lækka önnur gjöld sem áður hefðu staðið undir framkvæmdum og viðhaldi.
Nú væri hins vegar verið að hækka álögur án þess að eldri skattar lækkuðu á móti.

Kílómetragjaldið enn einn skatturinn á almenning

Hann nefndi kílómetragjaldið og fyrirhugaða gjaldtöku vegna samgönguframkvæmda sem dæmi um hvernig fleiri tekjustofnar væru lagðir á almenning og atvinnulíf. Á sama tíma væru framlög til vegamála að dragast saman milli ára, þrátt fyrir aukna skattheimtu sem meðal annars væri réttlætt með þörfinni fyrir betri samgönguinnviði.

Guðlaugur Þór varaði við að áframhaldandi skattahækkanir gætu bæði dregið úr umsvifum ferðaþjónustunnar og skilað ríkissjóði minni tekjum en stjórnvöld reiknuðu með. Mikilvægt væri að byggja fjárhagsáætlanir á raunhæfum forsendum um áhrif skattbreytinga í stað þess að gera ráð fyrir óbreyttri eftirspurn óháð verðhækkunum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila