
Frá fundinum umdeilda
Fyrirtækjaskrá Skattsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að aðalfundur félagasamtakanna Vorstjörnunnar, sem haldinn var 30. júní 2025, hafi ekki verið lögmætur. Af þeim sökum hefur skráning breytinga á stjórn félagsins verið hafnað.
Málið snýr að breytingum á stjórn Vorstjörnunnar sem tilkynntar voru til fyrirtækjaskrár í júlí á síðasta ári. Samkvæmt niðurstöðu fyrirtækjaskrár voru ákvarðanir fundarins ekki teknar á lögmætum aðalfundi í samræmi við samþykktir félagsins og því ekki unnt að skrá nýja stjórn.
Tengist átökum innan Sósíalistaflokksins
Vorstjarnan hefur um árabil verið tengd Sósíalistaflokki Íslands og niðurstaðan er nýr kafli í langvarandi átökum milli fylkinga innan flokksins.
Vorið 2025 urðu miklar breytingar á valdahlutföllum innan flokksins þegar framboð sem naut stuðnings Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Gunnars Smára Egilssonar beið ósigur í kosningu til framkvæmdastjórnar á aðalfundi flokksins.
Í kjölfarið var boðað til aðalfundar Vorstjörnunnar þar sem ný stjórn var kjörin. Meðal þeirra sem tóku sæti í stjórn voru Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sara Stef. Hildar, María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp og Guðmundur Auðuns.
Kvörtun varð tilefni rannsóknar
Sigrún Unnsteinsdóttir, sem þá hafði setið í stjórn félagsins, gerði athugasemdir við lögmæti fundarins og kvartaði til fyrirtækjaskrár.
Byggði kvörtunin á því að fundurinn hefði ekki verið boðaður af stjórn félagsins eins og samþykktir þess kvæðu á um.
Fyrirtækjaskrá féllst á þau sjónarmið og komst að þeirri niðurstöðu að fundurinn hefði ekki verið löglega boðaður. Því væru ákvarðanir hans, þar á meðal stjórnarkjörið, ekki gildar.
Stjórnin talin umboðslaus
Í tilkynningu sem send hefur verið til félagsmanna í kjölfar úrskurðarins kemur fram að þeir einstaklingar sem kjörnir voru í stjórn árið 2025 teljist nú ekki hafa gilt umboð til að fara með stjórn félagsins. Þar kemur jafnframt fram að unnið verði að því á næstu vikum að tæma húsnæði félagsins að Bolholti 6.
Óljóst er á þessari stundu hvernig stjórnunar- og rekstrarmálum félagsins verður háttað til framtíðar.
Milljónaframlög frá Sósíalistaflokknum
Vorstjarnan og Alþýðufélagið hafa á undanförnum árum notið verulegs fjárhagslegs stuðnings frá Sósíalistaflokki Íslands.
Samkvæmt opinberum upplýsingum hafa félögin hvort um sig fengið á bilinu 10 til 15 milljónir króna á ári í styrki eða lán frá flokknum. Fjármunirnir eru meðal annars tilkomnir vegna opinberra framlaga sem flokkurinn hefur fengið eftir að hafa náð tilskildu fylgi í alþingiskosningum.
Vorstjarnan fékk lán frá flokknum á árunum 2023 og 2024, en Alþýðufélagið naut styrkja árin 2021 og 2022. Þá hefur fjölmiðillinn Samstöðin sem stofnuð var af Gunnari Smára Egilssyni einnig fengið lán frá tengdum aðilum á síðustu árum.
Úrskurður fyrirtækjaskrár gæti því haft áhrif langt út fyrir starfsemi Vorstjörnunnar sjálfrar þar sem hann snertir félag sem hefur verið nátengt innri valdabaráttu og fjárhagsmálefnum innan Sósíalistaflokks Íslands.
