Skipulag Reykjavíkurborgar gengur gegn þörfum fjölskyldufólks

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í síðdegisútvarpinu um húsnæðismál, skipulag borgarinnar og stöðu miðborgarinnar. Hildur sagði núverandi þéttingarstefnu Reykjavíkurborgar hafa skapað húsnæðiskrísu, skort á bílastæðum og hverfi sem væru ekki hönnuð út frá raunverulegum þörfum fjölskyldna. Hún gagnrýndi einnig stöðu öryggismála í miðborginni og sagði skipulag Græna Gímaldsins vera eitt versta dæmi síðustu ára um mistök í borgarkerfinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Keldnaland skipulagt án nægilegs fjölda bílastæða

Hildur sagði Reykjavíkurborg hafa þrengt mjög að húsnæðisuppbyggingu með því að beina henni nær eingöngu inn á þéttingarreiti. Að hennar mati væri verið að byggja íbúðir sem fólk vildi ekki kaupa, meðal annars vegna skorts á bílastæðum, birtu og grænum svæðum. Hún nefndi sérstaklega fyrirhugaða uppbyggingu í Keldnalandi þar sem gert sé ráð fyrir um 12 þúsund íbúum og 6 þúsund starfsmönnum. Samkvæmt skipulaginu sem þegar hafi verið samþykkt verði hins vegar aðeins rúmlega 2 þúsund bílastæði á svæðinu. Hildur sagði þetta þýða að aðeins brot þeirra sem þar búa eða starfa geti átt bíl. Að hennar mati byggi skipulagið á óraunhæfri forsendu um að meirihluti fólks muni ferðast með Borgarlínu. Hún sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja þróa fjölbreyttari hverfi á svæðum eins og Geldinganesi, Kjalarnesi og í Úlfarsárdal þar sem meira verði byggt af sérbýlum, raðhúsum og fjölskylduvænum íbúðum.

Gagnrýnir miðborgarstefnu og ástandið í miðbænum

Hildur gagnrýndi einnig breytingar á bílastæðamálum og umferð í miðborg Reykjavíkur. Hún sagði hækkun bílastæðagjalda, aukna gjaldskyldu og lokanir gatna hafa fælt fólk frá miðbænum og skaðað rekstur verslana og veitingastaða. Hún sagði borgina senda þau skilaboð að fólk væri ekki velkomið á bílum í miðborgina. Samhliða þessu hefði orðið meiri umræða um öryggismál, slagsmál og ofbeldishegðun meðal ungmenna í miðbænum. Hildur sagði mikilvægt að borgaryfirvöld ættu náið samstarf við lögreglu um aukna viðveru og öryggi í miðborginni.

Segir Græna Gímaldið dæmi um alvarlega stjórnsýslubresti

Í viðtalinu ræddi Hildur einnig um Græna Gímaldið. Hildur sagði að kjörnir fulltrúar í skipulagsráði og borgarráði hefðu aldrei fengið fullnægjandi gögn eða þrívíddarteikningar sem sýndu raunveruleg áhrif framkvæmdarinnar. Hún sagði borgarstjóra hafa ýtt verkefninu áfram þrátt fyrir að ljóst væri að það yrði mjög umdeilt. Að hennar mati hefur Reykjavíkurborg ítrekað horft fram hjá áhrifum nýrrar byggðar á núverandi hverfi og gengið allt of langt í þéttingarstefnu sinni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila