
Skipulagsstofnun gerir fjölmargar athugasemdir við matsáætlun Fjarðarorku um fyrirhugað vindorkuver í Fljótsdalshreppi. Fram kemur í áliti stofnunarinnar að margt vanti upp á skýrleika og dýpt í greiningu framkvæmdarinnar. Um er að ræða vindorkuver með allt að 50 vindmyllum og 350 MW afli á fimm svæðum innan sveitarfélagsins.
Kallar eftir skýrari valkostum og aflgreiningu
Skipulagsstofnun telur að betur þurfi að greina valkosti við útfærslu vindorkugarðsins. Þeir þættir sem þurfi að skoða sérstaklega eru áfangaskipting framkvæmdar, möguleg aflaukning í 500 MW og áhrif mismunandi hæðar vindmylla. Þá þurfi að skýra hvers vegna 350 MW afl hafi verið valið í stað annarra valkosta.
Ófullnægjandi umfjöllun um tengingu við raforkukerfið
Í áliti stofnunarinnar er gagnrýnt að matsáætlunin geri ekki fullnægjandi grein fyrir hvernig vindorkuverið verður tengt við flutningskerfi Landsnets. Bent er á að tenging í Fljótsdalsstöð sé forsenda þess að rafmagn komist frá virkjuninni, en umfjöllun um þetta atriði sé ófullnægjandi. Þá er sérstaklega vísað til athugasemda frá Alcoa Fjarðaál og Landsvirkjun um að nýting Fljótsdalslína 3 og 4 gæti haft áhrif á afhendingaröryggi raforku til álversins.
Samfélagsleg áhrif vanmetin
Skipulagsstofnun leggur áherslu á að áhrif vindorkuverksins á nærsamfélagið í Fljótsdalshreppi verði metin mun betur en nú er gert. Íbúar og sveitarfélög hafa lýst áhyggjum af áhrifum á atvinnulíf, útivist, ferðaþjónustu, fasteignaverð og félagslegt samhengi. Stofnunin telur nauðsynlegt að framkvæma viðhorfskannanir meðal íbúa og haga samráði við heimamenn um áhrif framkvæmdarinnar.
Flutningar kalla á miklar vegabætur
Í áliti Skipulagsstofnunar er vakin athygli á því að flutningur vindmylluhluta með allt að 100 metra löngum spöðum kalli á víðtækar vegaframkvæmdir og aðlögun innviða. Gera þurfi grein fyrir áhrifum á vegakerfið, burðarþol brúa, umferðaröryggi og áhrifum á almenna umferð. Flutningaleiðir og áætlaður fjöldi ferða þurfi að liggja fyrir.
Hafa áhyggjur af afkomu heiðagæsarinnar
Fuglalíf er einn veigamesti umhverfisþátturinn í mati á áhrifum vindorkuvera, að mati Skipulagsstofnunar. Sérstök áhersla er lögð á heiðagæs, sem er viðkvæm þegar kemur að slíkum frakvæmdum. Gagnrýnt er að GPS-merkingar séu ekki fyrirhugaðar þrátt fyrir að gögn um flugferla fugla séu takmörkuð. Þá þurfi einnig að meta áhrif á fugla í myrkri og slæmu skyggni, sem núverandi rannsóknaráætlun nær ekki til.
Áhrif á víðerni og ásýnd verða umfangsmikil
Vindmyllurnar verða allt að 200 metra háar og staðsettar á svæðum í allt að 670 metra hæð yfir sjávarmáli. Sýnileiki þeirra verður því mikill. Skipulagsstofnun leggur áherslu á að mat á áhrifum á landslag og ásýnd fylgi bestu starfsvenjum og að teknar verði ásýndarmyndir frá vel völdum útsýnisstöðum í samráði við hagsmunaaðila og heimamenn. Þá þarf að meta áhrif framkvæmdarinnar á óbyggð víðerni sérstaklega.
Óljós áhrif á verndarsvæði
Í áliti stofnunarinnar er bent á að framkvæmdin sé í grennd við Vatnajökulsþjóðgarð, sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Þá sé einnig votlendi og önnur náttúruverndarsvæði á áhrifasvæðinu. Meta þarf áhrif á verndargildi svæðanna og forsendur verndar þeirra. Kallað er eftir skýrri greiningu á röskun votlendis og framsetningu korta með staðsetningu viðkvæmra svæða.
Þarf að greina áhrif á hreindýr, vatnalíf og mengun
Matsáætlunin gerir ráð fyrir að hreindýranyting verði skoðuð með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum. Skipulagsstofnun bendir á að það kunni að duga ekki og leggja þurfi mat á fælingaráhrif og áhrif á farleiðir, burðarsvæði og beitarsvæði. Þá er bent á að fjalla þurfi betur um áhrif á vatnshlot og mögulega mengun, þar á meðal örplast úr vindmylluspöðum og mengun vegna olíu eða afísingar.
Gera þarf betri grein fyrir hvernig hátta eigi niðurrifi og frágangi
Skipulagsstofnun gerir þá kröfu að fjallað verði ítarlega um frágang svæðisins að loknum rekstri vindorkugarðsins, auk mögulegrar endurnýjunar mannvirkja eftir 25 ár. Skýrt þurfi að koma fram hvernig niðurrif verði framkvæmt og hvaða lausnir séu í boði fyrir endurvinnslu, sérstaklega á spöðum sem erfitt getur verið að farga.
Samlegðaráhrif og heildarmynd
Í álitinu er einnig lögð áhersla á að meta þurfi samlegðaráhrif vindorkugarðsins við aðra fyrirhugaða vindorkugarða á Austurlandi, sérstaklega í Klausturseli og við Lagarfoss. Kallað er eftir sameiginlegum sýnileikakortum og greiningu á áhrifum á fugla, hreindýr, ásýnd og vistkerfi.
Gera ríkar kröfur til umhverfismatsskýrslu
Skipulagsstofnun undirstrikar að álit hennar sé bindandi og skuli það lagt til grundvallar við gerð umhverfismatsskýrslu. Stofnunin muni meta hvort skýrslan standist kröfur laga þegar hún verður lögð fram. Fram kemur að áform um vindorkuver í Fljótsdalshreppi séu með þeim stærstu sem kynnt hafa verið hérlendis og að umhverfismatið þurfi að endurspegla það umfang og þau áhrif sem framkvæmdirnar kunna að hafa á náttúru, samfélag og framtíðarlandnotkun.
Lesa má skýrsluna í heild með því að smella hér
