Skoðanakönnun: Arnar Þór efstur í annað sinn í forsetakönnun

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu ætla að kjósa Arnar Þór Jónsson sem næsta forseta Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Hvern ætlar þú að kjósa í forsetakosningunum?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Arnar Þór Jónsson: 62%

Katrín Jakobsdóttir: 9,9%

Halla Hrund Logadóttir: 6,9%

Baldur Þórhallsson: 6,6%

Halla Tómasdóttir: 3,2%

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir: 2,6%

Ástþór Magnússon: 2,3%

Jón Gnarr Kristinsson: 2,3%

Axel Pétur Axelsson: 1,8%

Ásdís Rán Gunnarsdóttir: 1,5%

Guðmundur Felix Grétarsson: 0,4%

Sigríður Hrund Pétursdóttir: 0,1%

Helga Þórisdóttir: 0%

Greidd voru 722 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila