Skotárásin á Blönduósi: Málið fellt niður þar sem um neyðarvörn var að ræða

Rannsókn á andláti skotárásarmanns í skotárásinni á Blönduósi síðastliðið haust hefur verið fellt niður af héraðssaksóknara. Að mati héraðssaksóknara bar andlát árásarmannsins að vegna nauðvarnar feðga sem gripu til hennar eftir að árásarmaðurinn hafði myrt eiginkonu eldri mannsins og að auki sært manninn alvarlega með skotvopni.

Það var mat héraðssaksóknara að feðgarnir hefðu ekki gengið lengra en takmörk neyðarvarna leyfðu miðað við þær aðstæður sem uppi voru þegar árásin átti sér stað.

Hér að neðan verður atburðarrásinni lýst og er rétt að vara viðkvæma við því sem þar kemur fram.

Við rannsókn málsins kom í ljós að árásarmaðurinn fór inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola á Blönduósi og gekk um vopnaður afsagaðri haglabyssu, með sjö haglaskot meðferðis. Hann sá að gestir voru á heimilinu, fór út úr húsinu og hélt húsráðandi á eftir honum. Utandyra kom til orðaskipta og átaka sem enduðu með því að árásarmaðurinn skaut húsráðanda í kvið og særði alvarlega. Árásarmaðurinn fór þá aftur inn í húsið og skaut eiginkonu húsráðanda í höfuð þar sem hún stóð í stofu og lést hún samstundis.

Húsráðandi kom þá að manninum og náði tökum á honum þar sem hann var að hlaða vopnið inni í húsinu. Sonur húsráðanda kom til aðstoðar og náði byssunni af árásarmanninum. Kom til mikilla átaka á milli sonarins og árásarmannsins en í ljós kom að árásarmaðurinn var með veiðihníf í vasa. Átökin enduðu á þann veg að árásarmaðurinn lét lífið. Réttarkrufning hefur leitt í ljós að dánarorsök var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst.

Lögreglan kom á staðinn tæpum hálftíma eftir að útkall barst

Við rannsókn málsins kom fram að sonurinn hringdi fyrsta símtal til neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna byssumanns inni í húsinu kl. 05.27. Lögregla á bakvakt í umdæminu var ræst út sjö og hálfri mínútu síðar. Lögregla var komin á vettvang kl. 05.53 eða 26 mínútum frá fyrstu aðstoðarbeiðni.

Rannsókn hefur ekki leitt í ljós að eitthvað eitt ákveðið atvik hafi orðið til þess að árásarmaðurinn mætti vopnaður á heimili árásarþola. Hann var einn að verki, allsgáður og hafði átt vinsamleg og virk samskipti við árásarþola fyrir árásina.

Tilkynnt var um ferðir árásarmannsins við heimili árásarþola og nágrenni þann 27.07.2022 þar sem hann hafði verið með haglabyssu í fórum sínum. Árásarmaðurinn afhenti lögreglu þau skotvopn sem voru skráð á hann og leitaði aðstoðar heilbrigðiskerfis. Rannsókn hefur leitt í ljós að hann var kominn aftur á Blönduós 12.08.2022. Við rannsókn á skotárásinni kom í ljós að árásarmaðurinn hafði tvisvar sinnum verið í garði við hús árásarþola í júlí og tekið upp myndbönd inn um glugga á húsinu á síma sinn.

Rannsóknin á skotvopninu leiddi í ljós að haglabyssan var skráð í eigu fyrirtækis sem seldi skotvopn og varð gjaldþrota árið 2008. Þrjár haglabyssur voru enn skráðar á fyrirtækið; byssan sem árásarmaðurinn notaði, byssa sem var í fórum óviðkomandi einstaklings og þriðja byssan Maveric M-88 haglabyssa sem er ófundin.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila