Skrif Björns Bjarnasonar vekja spurningar um lokun sendiráðsins í Rússlandi

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Hauk Hauksson, fréttamann í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um lokun íslenska sendiráðsins í Rússlandi 1. ágúst 2023 og þá umfjöllun sem fylgt hefur málinu. Arnþrúður vakti athygli á því að Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, hafi í kjölfar greinar Morgunblaðsins um störf Hauks í Rússlandi tekið málið upp á eigin vettvangi og tengt greinina sérstaklega við lokun sendiráðsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Björn tengir fréttastörf Hauks við sendiráðsmálið

Arnþrúður tók sérstaklega upp skrif Björns Bjarnasonar þar sem hann fjallaði um störf Hauks í Rússlandi og rifjaði upp lokun íslenska sendiráðsins í Moskvu. Björn skrifaði að Ísland hefði tæpast getað haldið úti öflugri tengilið við Pútín en Hauk Hauksson, þrátt fyrir að sendiráðinu hefði verið lokað.

Arnþrúður sagði athyglisvert að fyrrverandi ráðherra skyldi tengja þessi mál saman eftir að Útvarp Saga hefði fjallað ítarlega um lokun sendiráðsins og reynt að afla upplýsinga um forsendur ákvörðunarinnar.

Hún beindi jafnframt sjónum að því hvernig upplýsingar bærust fjölmiðlum og hverjir hefðu hagsmuni af því að koma ákveðinni umfjöllun á framfæri. Blaðamenn gætu verið í góðri trú um gögn sem þeim bærust án þess að þekkja alla hagsmuni þeirra sem útveguðu þau. Sérstaka athygli vekti hins vegar þegar áhrifamenn og fyrrum ráðherrar tækju slíka umfjöllun upp og dreifðu henni áfram til að rýra blaðamann og fjölmiðil í áliti.

Skýringar á lokun sendiráðsins tóku breytingum

Íslenska sendiráðinu í Moskvu var lokað 1. ágúst 2023 samkvæmt ákvörðun Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, þáverandi utanríkisráðherra. Arnþrúður rifjaði upp að takmarkað umfang starfseminnar hefði upphaflega verið gefið sem ástæða lokunarinnar.

2 árum síðar kom hins vegar fram í viðtali Þórdísar Kolbrúnar við breska blaðið Daily Mail að starfsfólk sendiráðsins hefði orðið fyrir áreitni. Þar voru meðal annars nefndir sígarettustubbar, brotin glös og önnur atvik sem hefðu verið túlkuð sem ógnandi skilaboð.

Arnþrúður benti á að Árni Þór Sigurðsson, fyrrverandi sendiherra Íslands í Moskvu, hefði í sjónvarpsviðtali ekki kannast við að hafa vitneskju um þau atvik sem lýst var.

Útvarp Saga fékk ekki öll gögn málsins

Útvarp Saga óskaði eftir upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu samkvæmt upplýsingalögum til að kanna nánar þær ásakanir sem fram komu um áreitni gegn starfsfólki sendiráðsins. Erfiðlega gekk að fá svör og var það ekki fyrr en upplýsingafulltrúi utanríksráðuneytisins vísaði málinu til lögfræðins ráðuneytisins að einhver svör fengust.

Arnþrúður greindi frá því að ákveðnir tölvupóstar hefðu verið afhentir en frekari upplýsingar ekki fengist vegna trúnaðar. Því hefði ekki tekist að fá heildstæða mynd af atburðarásinni eða skýringar á því hvers vegna þessar upplýsingar hefðu fyrst komið fram 2 árum eftir lokunina.

Haukur sagði ásakanir um áreitni gegn sendiráðsstarfsfólki vera alvarlegt diplómatískt mál. Ef slík atvik hefðu átt sér stað hefði þurft að tilkynna þau til viðeigandi rússneskra yfirvalda. Hann hafði sjálfur leitað upplýsinga um málið hjá Maríu Zakharovu, talsmanni rússneska utanríkisráðuneytisins og hún hefði fullvissað hann um að slíkt mál hefði ekki verið tilkynnt til yfirvalda ef eitthvað slíkt ætti sér stað.

Haukur bannfærður eftir að sendiráðinu í Moskvu var lokað

Haukur greindi frá því að lokun sendiráðsins hefði haft bein áhrif á störf hans sem íslensks fréttamanns í Moskvu. Ísland hefði í kjölfarið verið sett á lista rússneskra stjórnvalda yfir óvinveitt ríki og aðgangur hans að tilteknum blaðamannafundum takmarkast vegna íslensks ríkisfangs.

Hann gagnrýndi að diplómatískum samskiptaleiðum hefði verið lokað og taldi mikilvægt að viðhalda samtali milli ríkjanna þrátt fyrir ágreining um Úkraínustríðið.

Tímasetningin á umfjöllun Björns til þess fallin að rýra trúverðugleika

Arnþrúður benti á að Útvarp Saga hafi lagt áherslu á að afla upplýsinga frá ólíkum sjónarhornum og fréttaflutningur frá Rússlandi væri mikilvægur þáttur í þeirri vinnu. Skrif Björns vektu því spurningar um hvers vegna fréttastörf Hauks væru tengd sendiráðsmálinu, ekki síst í ljósi þess að Útvarp Saga hefði áður krafist nánari skýringa á ákvörðun stjórnvalda. Nú væri verið að keyra Bókun 35 í gegnum þingið og þessi umfjöllun gæti skaðað Útvarp Sögu og Haukur sagði að það væri svo mikil heift í ESB fólki eftir leiðtogafund Trump, Pútíns og XÍ Kínaforseta að stöðugt væri verið að kenna Rússum um óhæfuverk og nú síðast um alvarlega tölvuásás á 1984 en það væri komið í ljós núna að þar hefðu aðrir aðilar verið að verki en ekki Rússar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila