Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari efnahagsumsvif

Skýr merki eru um að vinnumarkaðurinn sé að kólna og hægt hafi á efnahagsumsvifum hér á landi á sama tíma og vextir eru háir. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands varar jafnframt við því að lækkandi raunverð húsnæðis, fjölgun íbúða á sölu og lengri sölutími geti reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil í greininni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem birt var í dag.

Nefndin segir íslenska fjármálakerfið engu að síður traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka sé sterk og aðgangur þeirra að markaðsfjármögnun greiður.

Fleiri íbúðir á sölu og sölutími lengist

Aukinn kaupmáttur og lítið atvinnuleysi hafa stutt við fjárhag heimila undanfarin ár. Skuldahlutföll heimila eru almennt lág og vanskil lítil.

Merki um breytingar í hagkerfinu eru þó farin að sjást. Vinnumarkaðurinn er að kólna og efnahagsumsvif hafa minnkað samhliða háum vöxtum.

Húsnæðisverð hefur jafnframt lækkað að raunvirði, íbúðum sem eru til sölu hefur fjölgað og lengri tíma tekur að selja þær. Þetta á sérstaklega við um nýjar íbúðir.

Fjármálastöðugleikanefnd segir þróunina geta reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og leitt til aukinna vanskila þar.

Alþjóðlegar verðbólguhorfur hafa versnað

Nefndin bendir einnig á vaxandi óvissu erlendis. Alþjóðlegar verðbólguhorfur hafa versnað og seðlabankar helstu iðnríkja hækkað vexti.

Áhyggjur af sjálfbærni opinberra fjármála hafa jafnframt aukist og langtímavextir ríkisskuldabréfa hækkað skarpt með tilheyrandi óróa á fjármálamörkuðum.

Á Íslandi hafa óverðtryggðir vextir lengri ríkisskuldabréfa ekki hækkað jafn mikið og gengi krónunnar hefur haldist tiltölulega stöðugt. Nefndin segir mikinn þjóðhagslegan sparnað og hóflega skuldsetningu þjóðarbúsins meðal skýringa.

Viðvarandi verðbólga, háir vextir, minnkandi efnahagsumsvif og órói erlendis geti þó reynt á viðnámsþrótt íslenska fjármálakerfisins.

Gervigreind getur gert netárásir öflugri

Fjármálastöðugleikanefnd vekur sérstaka athygli á þeirri hættu sem þróun gervigreindar getur haft í för með sér fyrir fjármálakerfið.

Gervigreind geti aukið hraða, umfang og flækjustig netárása. Því sé brýnt að fjármálafyrirtæki efli varnir sínar samhliða þróun netógna.

Nefndin leggur einnig áherslu á að samhæfa þurfi viðbúnað fjármálakerfisins vegna alvarlegra rekstraratvika.

Notkun greiðslukorta í netleysi er nú þegar komin til framkvæmda og segir nefndin það mikilvægan þátt í að styrkja greiðslumiðlun ef truflanir verða á fjarskiptum eða tölvukerfum.

Sveiflujöfnunaraukinn áfram 2,5%

Fjármálastöðugleikanefnd ákvað að halda sveiflujöfnunaraukanum óbreyttum í 2,5%.

Nefndin segir að áfram verði gripið til þeirra stjórntækja sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika og tryggja að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila