Smáskjálftahrinan líklega vegna spennubreytinga

Líklegt er að smáskjálftahrina sem hófst í gær við Lágafell, rétt norðvestan við Grindavík er líklega afleiðing spennubreytinga í jarðskorpunni vegna áframhaldandi landriss í Svartengi.

Henni var að mestu lokið um klukkan hálf fjögur í gær. Skjálftarnir voru um 90 talsins og var virknin mest milli kl. 13 og 14 þegar 35 skjálftar mældust. Allir skjálftarnir voru undir 1 að stærð og flestir á um 2-4 km dýpi.

Meðfylgjandi hér að neðan er samsett mynd sem sýnir staðsetningu skjálftanna á korti og neðan þess er graf sem sýnir dýpt þeirra. Efst til hægri er sýnd stærð skjálfta frá hádegi í gær þar til í gærkvöldi. Þar fyrir neðan er uppsafnaður fjöldi skjálfta og neðst fjöldi skjálfta á klukkustund. Eins og gröfin sýna mældust nokkrir smáskjálftar á svæðinu síðdegis í gær en eftir miðnætti í dag hefur ekki mælst skjálftavirkni þarna.

  

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila