Snertiskjákerfi sem brást í Osló innleitt á Keflavíkurflugvelli

Kristján Örn Elíasson ræddi við Friðrik Einarsson, leigubílstjóra sem betur er þekktur sem Taxi hunter í síðdegisútvarpinu um nýtt snertiskjákerfi sem Isavia hyggst taka upp við Keflavíkurflugvöll, eftir fyrirmynd frá Gardermoen-flugvelli í Osló. Í viðtalinu lýsti Friðrik miklum efasemdum um fyrirkomulagið og sagði sambærilegt kerfi í Noregi hafa leitt til aukins leigubílasvindls og meiri óreiðu inni í flugstöðinni sjálfri. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Farþegar eiga að velja bíl í gegnum skjái

Friðrik sagði leigubílstjórum hafa verið kynnt nýja kerfið á fundi nýlega. Samkvæmt fyrirkomulaginu verða settir upp snertiskjáir inni í komusal Keflavíkurflugvallar þar sem ferðamenn velja sér leigubílafyrirtæki áður en þeir fara út á stæðin. Kerfið er byggt á lausn sem notuð hefur verið á Gardermoen-flugvelli í Osló. Markmiðið er að stýra flæði farþega betur og draga úr ágreiningi á leigubílastæðum við flugvöllinn.
Friðrik sagði þó að margir innan leigubílstéttarinnar teldu að verið væri að innleiða kerfi sem hefði þegar reynst vandasamt erlendis.

Viðvörunarskilti vegna svindls í komusalnum

Í viðtalinu vísaði Friðrik til þess að á Gardermoen hafi síðar þurft að setja upp stór viðvörunarskilti inni í komusal þar sem ferðamenn eru varaðir við leigubílasvindli. Þar eru farþegar hvattir til að nota aðeins opinber bókunarkerfi flugvallarins og forðast að fylgja einstaklingum sem reyna að beina þeim að óskráðri þjónustu. Að hans sögn færðist vandinn í Osló inn í komusalinn sjálfan eftir að snertiskjáakerfið var tekið upp. Þar hafi skutlarar og aðrir aðilar farið að hafa áhrif á hvaða fyrirtæki ferðamenn veldu í kerfinu.

Friðrik sagði svipaða þróun þegar vera farin af stað við Keflavíkurflugvöll þar sem óskráðir skutlarar reyndu að ná til ferðamanna inni í flugstöðinni áður en þeir kæmu að löglegum leigubílastæðum.

Óttast að grunnvandinn verði áfram óleystur

Friðrik gagnrýndi jafnframt að leigubílstjórar hefðu lítið verið hafðir með í ráðum við undirbúning breytinganna. Hann taldi að skortur á verkstjórn og eftirliti væri raunverulegt vandamál við Keflavíkurflugvöll en ekki skortur á tæknilausnum. Að hans mati er hætta á að nýja kerfið flytji einfaldlega vandann af leigubílastæðunum inn í komusalinn sjálfan ef eftirlit og stjórnun verði ekki efld samhliða breytingunum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila