
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Snorra Másson þingmann Miðflokksins og frambjóðanda til varaformanns Miðflokksins sem fer fram á Hotel Nordica um kl. 11:00 í dag. Snorri og Pétur ræddu um loftslagsmál og útgjöld ríkisins. Snorri gagnrýndi þann mikla kostnað sem hafi fylgt loftslagsaðgerðum undanfarin ár sem hann kallar „loftlagssósíalisma“ og segir að fjármunum sé varið í skattgreiðslur og verkefni sem hafi lítil eða óljós áhrif á raunverulega samdrætti í losun. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Segir loftslagsaðgerðir notaðar til að réttlæta skattahækkanir
Snorri bendir á að íslensk stjórnvöld hafi á síðustu árum varið tugum milljarða króna í loftslagsverkefni og refsiskatta tengda alþjóðlegum samningum, meðal annars innan Evrópusambandsins. Hann segir að slíkar aðgerðir hafi þróast í það sem hann kallar „loftslagssósíalisma“ þar sem sköttum sé beitt án þess að árangur sé sýnilegur.
Vill beina skattfé í skóla, heilbrigðisþjónustu og innviði
Að hans mati eigi tekjur ríkisins að nýtast fyrst og fremst í nauðsynlega þjónustu fyrir almenning, svo sem í skóla, leikskóla, heilbrigðiskerfi og uppbyggingu húsnæðis. Hann segir að á meðan fjármagn fari í kostnaðarsamar loftslagsaðgerðir verði skortur á fjármunum fyrir grunnþjónustu sem hafi bein áhrif á lífsgæði fólks.
Telur Ísland hafa þegar náð langt í orkuskiptum
Snorri bendir á að Ísland noti endurnýjanlega orku í miklu meira mæli en flest önnur ríki og hafi því þegar tekið stór skref í átt að minni losun. Hann segir að íslensk stjórnvöld hafi engu að síður ákveðið að herma eftir aðgerðum ríkja sem byggja orkuframleiðslu sína á jarðefnaeldsneyti og að slíkar ákvarðanir séu bæði kostnaðarsamar og óraunhæfar í íslensku samhengi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
