
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Snorra Másson, alþingismann og varaformann Miðflokksins, í síðdegisútvarpinu, um stöðu ríkisstjórnarinnar eftir að þjóðin hafnaði áformum um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Snorri sagði ríkisstjórnina hafa misst sitt helsta pólitíska verkefni eftir að henni hefði jafnframt mistekist að ná þeim árangri í efnahagsmálum sem lofað var fyrir kosningar. Brottför Jóns Gnarr, úr þingflokki Viðreisnar sýndi einnig alvarlegan forystuvanda innan annars stærsta stjórnarflokksins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ríkisstjórnin situr eftir án erindis
Snorri sagði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafa leitt í ljós þann vanda sem margir hefðu séð fyrir. Ríkisstjórnin hefði lagt mikla áherslu á Evrópusambandsmálið en nú væri það verkefni ekki lengur á dagskrá.
Hann hafði frá upphafi verið sannfærður um að þjóðin myndi hafna áformunum. Eftir ósigurinn blasti við ríkisstjórn sem hefði lítið eftir af þeim verkefnum sem hún hefði ætlað sér að framkvæma. Sérstaklega væri staða Viðreisnar erfið. Flokkurinn hefði gert umsókn um aðild að Evrópusambandinu að einu helsta stefnumáli sínu en væri nú án þess verkefnis sem hefði átt að réttlæta þátttöku hans í ríkisstjórninni.
Mistókst að ná stjórn á efnahagsmálunum
Snorri rifjaði upp að ríkisstjórnin hefði fyrir kosningar boðað aðgerðir til að ná tökum á ríkisfjármálunum og draga úr verðbólgu og háum vöxtum.
Strax við framlagningu fyrstu fjárlaga ríkisstjórnarinnar hefði orðið ljóst að hún myndi ekki ná þeim árangri sem lofað var. Í stað þess að takast á við lausatök í ríkisrekstrinum hefði Evrópusambandsmálið fengið aukið vægi. Það hefði jafnvel þjónað þeim tilgangi að færa athyglina frá þeim efnahagslegu verkefnum sem ríkisstjórninni hefði ekki tekist að leysa.
Nú væri einnig búið að hafna því verkefni og ríkisstjórnin stæði eftir án skýrrar stefnu, um hvernig ætti að bregðast við efnahagsvandanum.
Forystuvandi innan Viðreisnar
Brottför Jóns Gnarr, úr þingflokki Viðreisnar var einnig til umræðu. Snorri sagði að þrátt fyrir að Jón væri ekki alltaf skýr í pólitískum yfirlýsingum sínum væri auðvelt að greina alvarleg skilaboð í því sem hann hefði sagt um stöðu flokksins.
Jón hefði lýst innri ágreiningi og forystuvanda sem hefði haft áhrif á starfsemi Viðreisnar. Þar væri ekki aðeins um persónulegan ágreining að ræða heldur einnig afleiðingar þess áfalls sem flokkurinn hefði orðið fyrir í Evrópusambandsmálinu.
Snorri vísaði sérstaklega til ummæla Jóns um að fólk í forystu flokksins, væri ekki lengur að standa sig í störfum sínum vegna áfallsins eftir ósigurinn. Slík staða innan annars stærsta stjórnarflokksins hefði óhjákvæmilega áhrif á ríkisstjórnina í heild.
Óljóst hvað Viðreisn hefur eftir að berjast fyrir
Snorri gagnrýndi að Viðreisn hefði lítið eftir af sinni sérstöðu eftir að aðildarviðræður við Evrópusambandið væru ekki lengur pólitískur möguleiki.
Hann sagði flokkinn í auknum mæli hafa lagt áherslu á svokallaða vók-stefnu og pólitískan rétttrúnað þar sem þeir sem hefðu önnur sjónarmið, sættu harðri gagnrýni. Þessi stefna gerði Viðreisn að mörgu leyti enn róttækari en eldri útgáfur Samfylkingarinnar án þess að skýrt væri hvaða önnur verkefni flokkurinn ætlaði að leiða innan ríkisstjórnarinnar.
Snorri sagði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og ágreininginn innan Viðreisnar hafa afhjúpað hversu veik pólitísk staða ríkisstjórnarinnar væri orðin.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
