Söguleg heimsókn Tarkovskís rifjuð upp með göngu og sýningu á Fórninni

Efnt verður til göngu og kvikmyndasýningar sunnudaginn 26. apríl þar sem rakin verða tengsl kvikmyndaleikstjórans Andrejs Tarkovskís við Ísland og söguleg atvik tengd kalda stríðinu. Viðburðurinn hefst á Hótel Holti og lýkur í Bíó Paradís.

Gengið verður á slóðir Tarkovskís og eiginkonu hans Larissu sem heimsóttu Ísland árið 1985. Viðburðurinn er haldinn í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá andláti Tarkovskís og frumsýningu kvikmyndarinnar Fórnin. Jafnframt er minnst 40 ára frá Tsjernobyl-slysinu sem átti sér stað 26. apríl 1986.

Fjallað um tengsl Íslands og kalda stríðsins

Gunnar Þorri Pétursson leiðir gönguna og heldur fyrirlestur um tengsl Tarkovskís, Tsjernobyl og Íslands sem vettvangs samskipta austurs og vesturs á tímum kalda stríðsins. Hann hefur hlotið Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu sína á bókinni Tsjernobyl-bæninni eftir Svetlönu Aleksíevítsj.

Guðrún Gísladóttir leikkona segir frá kynnum sínum af Tarkovskí en hún fór með eitt af aðalhlutverkum í Fórninni. Þá tekur Benedikt Erlingsson leikari og leikstjóri þátt og greinir frá tengslum sínum við heimsókn Tarkovskí-hjónanna.

Átök tengd kvikmyndahátíð rifjuð upp

Í kjölfar heimsóknarinnar var efnt til Tarkovskí-kvikmyndahátíðar í Reykjavík til að vekja athygli á stöðu fjölskyldu leikstjórans, en sonur hans var þá haldinn eftir í Sovétríkjunum. Hátíðin vakti mikla athygli og leiddi til átaka þegar reynt var að stöðva sýningar á kvikmyndum hans.

Viðburðurinn stendur yfir frá kl. 14:00 til 18:30 og lýkur með sérstakri sýningu á Fórninni í Bíó Paradís. Að honum standa Bíó Paradís, Listaháskóli Íslands og Háskóli Íslands.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila