Sóknarfæri í aukinni steinullarframleiðslu á Íslandi

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristinn Sigurjónsson, rafmagns- og efnaverkfræðing í síðdegisútvarpinu, um brunavarnir, einangrunarefni og möguleika Íslands til aukinnar steinullarframleiðslu. Kristinn telur þar felast verulegt atvinnu- og útflutningstækifæri þar sem framleiðslan byggi nær eingöngu á íslensku hráefni, íslenskri raforku og íslenskri vinnu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Brunar vekja spurningar um byggingarefni

Arnþrúður vék að nýlegum bruna í Toppstöðinni í Elliðaárdal. Kristinn benti á að þar hefði verið asbest, efni sem áður var mikið notað vegna þess að það er eldfast og hitaþolið..

Hann benti jafnframt á mannskæða eldsvoða erlendis og nefndi bruna í Sviss, Hong Kong og Englandi þar sem eldur hefði breiðst út um byggingar. Þetta taldi hann undirstrika mikilvægi þess að huga vel að þeim efnum sem notuð eru við einangrun og frágang húsa.

Nær allt hráefnið íslenskt

Kristinn sagði Ísland hafa góða stöðu til að efla steinullarframleiðslu. Hún byggði að mestu á innlendum aðföngum: íslensku bergi, raforku og vinnuafli.

Að hans sögn þyrfti aðeins að flytja inn um 5% af hráefnunum en annað kæmi frá Íslandi. Hann taldi því mikla möguleika felast í að auka framleiðsluna og byggja áfram á þeirri þekkingu sem þegar væri til staðar hér á landi.

Vill efla framleiðslu og markaðssetningu

Kristinn sagði steinullarframleiðslu vera dæmi um tæknigrein sem stjórnvöld ættu að styðja betur. Hann taldi mikil tækifæri felast í markaðssetningu á íslenskri steinull sem góðu einangrunarefni og lagði áherslu á að framleiðslan byggði bæði á íslenskri orku og íslenskri þekkingu.

Að hans mati væri þar raunverulegt atvinnu- og útflutningstækifæri sem ætti að efla og styrkja.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila