
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, í síðdegisútvarpinu í dag, um stöðuna á vinnumarkaði, verðbólguna og mögulega uppsögn kjarasamninga. Sólveig Anna sagði ekki skynsamlegt að segja samningunum upp núna ef ríki og sveitarfélög koma með raunverulegar aðgerðir að borðinu. Verði samningunum haldið, fá félagsmenn Eflingar 4,99% hækkun taxta í janúar en sú hækkun fellur niður verði samningunum sagt upp. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Janúarhækkunin hverfur við uppsögn
Forsenduákvæði kjarasamninganna gerir samningsaðilum kleift að segja þeim upp ef forsendur þeirra standast ekki. Tilkynna þarf um slíka ákvörðun eigi síðar en klukkan 16 þann 8. október.
Afstaða Eflingar er að betra sé fyrir verka- og láglaunafólk að halda samningunum ef stjórnvöld og sveitarfélög leggja nægilega mikið til. Fjórða og síðasta launahækkun samningstímans kemur í janúar og taxtar Eflingar eiga þá að hækka um 4,99%.
Verði samningunum hins vegar sagt upp fellur hækkunin niður og samningarnir úr gildi. Þá hefjast nýjar viðræður frá öðrum stað og mögulega þyrfti að boða verkföll til að ná aftur hækkunum sem þegar hafa verið samið um.
Sama staða gæti einnig haft áhrif á opinbera markaðinn. Þar eiga umsamin laun að hækka í apríl en ef samningar á almenna markaðnum opnast geta samningar opinberra starfsmanna einnig opnast.
Vill frekar ná verðbólgunni niður
Pétur benti á að atvinnurekendur hefðu sagt ekkert svigrúm vera fyrir frekari launahækkanir og að meiri hækkanir gætu ýtt undir verðbólgu.
Sólveig Anna sagði sig og Vilhjálm Birgisson, sammála um að við núverandi aðstæður væri mikilvægara að reyna að ná verðbólgunni niður en að semja um nokkur þúsund krónna viðbót sem hyrfi fljótt í hærra verðlag.
Hún telur því óskynsamlegt að fórna umsömdum hækkunum fyrir óvissa vegferð inn í nýjar kjaraviðræður nema ljóst sé að hægt sé að ná betri niðurstöðu.
Ríki og sveitarfélög stilli hækkunum í hóf
Stjórnvöld hafa unnið að pakka aðgerða sem ætlað er að stuðla að því að samningarnir haldi. Nákvæmt innihald hans lá ekki fyrir þegar viðtalið fór fram en Sólveig Anna sagði ýmislegt benda til þess að hlustað hefði verið á kröfur verkalýðshreyfingarinnar.
Sveitarfélög hafa lýst yfir vilja til að halda krónutöluhækkunum gjaldskráa innan 2,5% verðbólgumarkmiðs Seðlabankans. Sólveig Anna vill sjá sambærilega nálgun hjá ríkinu ásamt öðrum aðgerðum sem hafi raunverulegt gildi fyrir verka- og láglaunafólk.
Hún lagði áherslu á að aðkoma ríkisins snerist fyrst og fremst um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og vinna þannig gegn verðbólgu en ekki að taka stórar fjárhæðir úr ríkissjóði og setja í ný verkefni.
Samningunum sagt upp ef tilboðið dugar ekki
Sólveig Anna tók jafnframt skýrt fram að Efling væri ekki búin að ákveða að halda samningunum hvað sem á gengi.
Ef stjórn félagsins og trúnaðarráð kæmust að þeirri niðurstöðu að það sem lagt yrði á borðið væri ekki nægilegt væri ekki um annað að ræða en að segja samningunum upp.
Slík ákvörðun yrði þó ekki tekin af léttúð. Verkamenn myndu þá missa janúarhækkunina og hefja nýjar samningaviðræður frá núllpunkti með þeirri óvissu og þeim átökum sem því gætu fylgt.
Sólveig Anna sagði markmiðið nú að finna lausn sem verji kaupmátt, nái verðbólgunni niður og skili verka- og láglaunafólki því sem þegar hefur verið samið um.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
