
Geir Örn Jacobsen lést aðeins 17 ára gamall á meðferðarheimilinu Stuðlum. Í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur í Síðdegisútvarpinu sagði faðir hans Jón Jacobsen varaformaður Samtaka aðstandenda fíknisjúkra frá erfiðri lífsreynslu sonar síns og aðdragandanum að því að hann endaði í meðferð á Stuðlum. Hann lýsti því hvernig líf hans var mótað af áföllum allt frá unga aldri og hvernig kerfið brást honum með skorti á stuðningi og úrræðum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Átti erfiða æsku og glímdi við tengslarof
Frá fæðingu glímdi Geir Örn við mikla erfiðleika. Móðir hans var í neyslu og þegar hann var aðeins tveggja ára var hún orðin of veik til að sjá um hann. Í kjölfarið fluttist hann til föður síns og stjúpmóður sinnar en móðir hans lést úr fíknisjúkdómi ári síðar. Að missa bæði tengsl og móður á þessum viðkvæma aldri hafði djúpstæð áhrif á hann. Jón lýsti því hvernig slíkt tengslarof getur leitt til óöryggis hjá börnum og að slíkt hefði áhrif á félagslega og tilfinningalega færni sonar síns.
Varð fyrir einelti og alvarlegri líkamsárás
Í grunnskóla átti Geir erfitt uppdráttar og sýndi hegðun sem vakti athygli skólakerfisins. Í stað þess að leita að orsökum vandans var hann greindur með röskun sem Jón telur hafa verið röng nálgun. Þegar Geir fór í unglingadeild versnaði staðan og hann varð fyrir alvarlegu einelti sem leiddi til líkamlegs ofbeldis. Að sögn Jóns varð sonur hans fyrir alvarlegri líkamsárás af hópi unglinga í verslunarmiðstöðinni Firðinum og var illa farinn eftir árásina.
Skólakerfið og skortur á úrræðum
Með áframhaldandi vanlíðan og erfiðleikum í skóla var Geir fluttur í sérúrræði. Hann hóf nám í Brúarskóla en þrátt fyrir að standa sig vel þar fékk hann ekki nægan stuðning utan skólans. Jón sagði að alla skólagönguna hafi verið reynt að troða lyfjum í hann frekar en að leita að rótum vandans. Hann telur að það hafi skort skilning á að hegðun sonar hans væri afleiðing áfalla og tengslarofs fremur en raskanir sem hægt væri að meðhöndla með lyfjum.
Vistunin á Stuðlum
Á meðan hann reyndi að fóta sig í lífinu lenti Geir í slæmum félagsskap og komst í kast við lögin. Að lokum var hann vistaður á Stuðlum þar sem hann átti að fá aðstoð til að ná sér á strik. Jón hefur gagnrýnt þessa ákvörðun og sagði að Stuðlar hafi ekki verið rétta úrræðið fyrir son sinn. Hann sagði að vistunin hafi verið meira eins og refsikerfi heldur en meðferðarúrræði sem veitti raunverulega aðstoð. Auk þess sem Jón segir að þar séu aðilar sem ekki eigi að vinna með börn.
Lést í bruna á Stuðlum
Geir Örn lést á Stuðlum í kjölfar brunans sem þar varð- ekki hefur verið upplýst um eldsupptök. Geir Örn var læstur inn í herberginu þar sem eldur braust út og hann komst ekki út um læstar dyrnar. Jón telur að kerfið hafi brugðist syni sínum með því að veita ekki viðeigandi úrræði og að fjöldi barna sé í sömu stöðu þar sem þau fá ekki aðstoð fyrr en það er orðið of seint. Hann hefur talað fyrir því að breytingar verði gerðar á meðferðarúrræðum fyrir börn og ungmenni með sögu tengslarofs og áfalla svo að fleiri þurfi ekki að upplifa svipaða örlög og sonur hans.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
