
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Kára Stefánsson, lækni og fyrrverandi forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, í þættinum Skipulagsmál, um þéttingu byggðar og áhrif hennar á nærumhverfi fólks. Kári sagði minni ástæðu til mikillar þéttingar í jafn dreifbýlu landi og Íslandi en víða annars staðar og taldi sparnað í gatna- og lagnagerð ekki vega upp á móti missi opinna svæða. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Börnin þurfa rými til að leika sér
Kári lagði mesta áherslu á áhrif þéttingar á börn. Opin svæði þar sem er gras, gróður og tré gefi þeim öruggt rými til að hlaupa, leika sér og vera úti.
Hann rifjaði upp eigin æsku í Norðurmýrinni þar sem Klambratún var enn tún og stór hluti daglegs lífs barna fór fram utandyra. Slík svæði hefðu að hans mati mikið gildi, ekki aðeins fyrir börn heldur samfélagið allt.
Þegar byggt væri á opnum svæðum hyrfi eitthvað sem erfitt væri að endurheimta síðar.
Útsýni og græn svæði verði varðveitt
Hjördís spurði hvers vegna farið hefði verið í svo mikla þéttingu eftir aldamót þegar margir íbúar hefðu hvorki óskað eftir að missa útsýni né fá stórar byggingar fyrir framan sig.
Kári lagði áherslu á að þeir sem stóðu að þéttingarstefnunni hefðu viljað Reykjavík hið besta. Mistök gætu hins vegar orðið og mikilvægt væri að læra af þeim. Nú ætti að gæta þess að byrgja ekki sýn til fjalla og taka ekki meira rými frá börnum til leikja.
Vill halda opnum svæðum inni í byggðinni
Kári tók undir þá stefnu að varðveita opin rými mitt í byggð svo áfram sæist til grass og fólk hefði pláss til útiveru.
Hann sagði Heiðmörkina einnig mikið verðmæti fyrir höfuðborgarsvæðið og hvatti fólk til að nýta hana til gönguferða og útivistar.
Þótt einhver hagkvæmni geti fylgt þéttingu, meðal annars vegna styttri gatna og lagna, telur Kári það ekki réttlæta að gengið sé of langt á græn svæði og leikrými. Þar þurfi að vega fjárhagslegan ávinning gegn þeim lífsgæðum sem glatast þegar opin svæði hverfa.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
