
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Optise hefur verið valið í Startup Battlefield, sprotakeppni tæknimiðilsins TechCrunch, og er fyrsta íslenska fyrirtækið sem kemst í keppnina á 20 ára sögu hennar. Optise var valið úr þúsundum umsókna í hóp 200 sprotafyrirtækja sem fá að kynna lausnir sínar á TechCrunch Disrupt í San Francisco 13. til 15. október.
Startup Battlefield hefur um árabil verið vettvangur fyrir ný tæknifyrirtæki að kynna sig fyrir fjárfestum og tæknigeiranum. Fyrirtæki á borð við Dropbox, Cloudflare, Discord og Fitbit hafa áður tekið þátt í keppninni.
Einn geti sinnt því sem áður þurfti heilt teymi í
Optise þróar vefkerfi fyrir fyrirtæki sem fylgist með frammistöðu vefsíðna, greinir hvað megi bæta og leggur til breytingar. Kerfið getur síðan framkvæmt breytingarnar þegar viðskiptavinurinn hefur samþykkt þær.
Markmiðið er að gera einum starfsmanni kleift að sinna rekstri vefs sem áður hefði kallað á heilt teymi.
Ómar Þór Ómarsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Optise, segir þátttökuna hafa verið draum sinn lengi.
„Mig hefur dreymt um að keppa á þessu sviði síðan ég sat heima í sófa og horfði á Silicon Valley sjónvarpsþættina, þar sem sprotafyrirtækið Pied Piper setti allt á annan endann í keppninni. Í október stöndum við á sama sviði og sýnum San Francisco framtíð vefsíðukerfa, og hún kemur frá Íslandi,“ segir Ómar Þór.
Yfir 10.000 mæta á ráðstefnuna
TechCrunch Disrupt dregur saman yfir 10.000 frumkvöðla, fjárfesta og fjölmiðlamenn. Sigurvegari Startup Battlefield verður síðan krýndur á lokadegi ráðstefnunnar 15. október.
Áður en Optise heldur til San Francisco ætlar fyrirtækið að halda útgáfuviðburð í Grósku þar sem teymið frumsýnir lausnina sem það hyggst kynna á TechCrunch Disrupt.
Íslenski vísisjóðurinn Frumtak Ventures fjárfesti 300 milljónir króna í Optise árið 2025. Fyrirtækið einbeitir sér að vefsíðulausnum fyrir fyrirtæki sem eiga viðskipti við önnur fyrirtæki og segir kerfið meðal annars geta aukið umferð, fyrirspurnir og viðskiptatækifæri.
