Starfshópi faliðað móta nýja nálgun stjórnvalda í gervigreindarmálum

Starfshópur sem á að endurmeta nálgun íslenskra stjórnvalda í málefnum gervigreindar hefur tekið til starfa. Hlutverk hans er að fara heildstætt yfir stefnu og aðgerðir stjórnvalda á sviðinu og leggja fram tillögur um forgangsröðun og úrbætur í ljósi hraðrar þróunar gervigreindar.

Hópurinn var skipaður að tillögu forsætisráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og á að skila tillögum sínum fyrir lok september.

Áhersla á samstarf við atvinnulífið

Starfshópnum er einnig ætlað að veita stjórnvöldum ráðgjöf um hvernig styðja megi við uppbyggingu og innleiðingu gervigreindar á Íslandi. Jafnframt á hann að móta tillögur um aukið samstarf hins opinbera og atvinnulífsins um hagnýtingu gervigreindar.

Í hópnum sitja sérfræðingar utan Stjórnarráðsins með reynslu og þekkingu á gervigreind og nýsköpun.

Fimm sérfræðingar skipa hópinn

Formaður starfshópsins er Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri GRID. Auk hans eiga sæti í hópnum Anna Tumadóttir, framkvæmdastjóri Creative Commons, Ari Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri nýsköpunarsjóðs Atlantshafsbandalagsins, Halldór Fannar Guðjónsson, tæknistjóri hjá NVIDIA, og Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.

Fulltrúar frá forsætisráðuneytinu og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu starfa jafnframt með hópnum.

Byggir á gildandi stefnu stjórnvalda

Skipun starfshópsins byggir á stefnu Íslands um gervigreind og aðgerðaáætlun stjórnvalda á því sviði. Samkvæmt stjórnvöldum er markmiðið að skapa traustan grunn fyrir áframhaldandi þróun og ábyrga nýtingu gervigreindar hér á landi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila