Starfshópur um nýtingu erfðaupplýsinga til sjúkdómaforvarna skipaður

dnatestKristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem leggja á fram tillögur um nýtingu erfðaupplýsinga í einstaklingsmiðuðum forvörnum. Hópurinn skal leggja sérstaka áherslu á miðlun upplýsinga um stökkbreytingar í BRCA genum sem auka verulega hættu á brjóstakrabbameini.
Í skipunarbréfi starfshópsins segir að mikilvægt sé að heilbrigðisyfirvöld móti stefnu á þessu sviði þar sem fram komi hvernig réttast sé að nýta erfðaupplýsingar í einstaklingsmiðuðum forvörnum, bæði út frá siðferðislegum og læknisfræðilegum sjónarmiðum. Þess sé vænst að vinna starfshópsins gefi heilbrigðisyfirvöldum góðan grunn til að standa á þegar hafist verði handa við skynsamlega nýtingu upplýsinga úr gagnagrunnum hér á landi í forvarnarskyni.
Formaður starfshópsins er Sigurður Guðmundsson. Aðrir nefndarmenn eru:
  • Hörður Helgi Helgason, án tilnefningar
  • Jón Jóhannes Jónsson, tiln. af Landspítala
  • Kári Stefánsson, tiln. af Íslenskri erfðagreiningu
  • Laufey Tryggvadóttir, tiln. af Krabbameinsfélagi Íslands
  • Rósa Dögg Flosadóttir, tiln. af innanríkisráðuneyti
  • Sigríður Haraldsdóttir, tiln. af Embætti landlæknis
  • Unnur Anna Valdimarsdóttir, tiln. af heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands
  • Þórunn Oddný Steinsdóttir er fulltrúi velferðarráðuneytisins í starfshópnum og jafnframt starfsmaður hópsins.
Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum til heilbrigðisráðherra fyrir 1. nóvember 2017.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila