Stefán Pálsson varar við aukinni hervæðingu Evrópu

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Stefán Pálsson, sagnfræðing og varaborgarfulltrúa Vinstrisins í síðdegisútvarpinu um aukin hernaðarútgjöld í Evrópu, umræðu um sameiginlega varnarmálastefnu Evrópusambandsins og mögulega aðkomu Íslands að slíkum verkefnum. Stefán sagði áhyggjur sínar snúa bæði að aukinni hervæðingu Evrópu og þeirri þróun að Evrópumálið væri í auknum mæli tengt öryggis- og varnarmálum í íslenskri umræðu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Ríkisstjórnin reynir að sannfæra kjósendur með öryggisrökum

Í viðtalinu sagði Stefán að stuðningsmenn Evrópusambandsaðildar hefðu í auknum mæli byggt málflutning sinn á breyttum aðstæðum í alþjóðamálum, sérstaklega vegna stríðsins í Úkraínu, óvissu í samskiptum við Bandaríkin og umræðu um Donald Trump. Að hans mati væri ríkisstjórnin að reyna að sannfæra kjósendur um að Ísland ætti að færa sig nær Evrópusambandinu af öryggisástæðum. Hann sagði þó óljóst hversu mikið fylgi slíkur málflutningur hefði meðal almennings og taldi að margir Íslendingar hefðu litla yfirsýn yfir þær breytingar sem nú væru ræddar í varnarmálum Evrópu.

Stefán sagðist telja að þetta væri sú strategía sem stuðningsmenn aðildarviðræðna væru að leggja upp með, en hann efaðist um að hún myndi nægja til að snúa pólitísku landslaginu ríkisstjórninni í hag.

Varar við hugmyndum um Evrópuher

Stefán sagði lengi hafa verið uppi hugmyndir meðal stærri ríkja Evrópu um að byggja upp sjálfstætt hernaðarafl á vegum Evrópusambandsins. Hann nefndi sérstaklega Frakkland og Þýskaland í því samhengi en sagði jafnframt að Norðurlönd hefðu tekið upp herskárri tón í varnarmálum á síðustu árum. Að hans mati fælist þó í þessum hugmyndum ákveðið ofmat á getu Evrópuríkja til að verða sjálfstætt hernaðarlegt stórveldi sambærilegt við Bandaríkin eða Kína.

Segir Íslendinga þurfa skýr svör

Í viðtalinu gagnrýndi Stefán einnig umræðu um aukin hernaðarútgjöld og sagði þær fjárhæðir sem nefndar hefðu verið svo háar að erfitt væri að sjá íslensk stjórnvöld hafa pólitískt bolmagn til að standa undir þeim. Stefán leggur til að Ísland setji í samningsmarkmið sín þá fyrirvara að enginn Íslendingur tæki þátt í beinum hernaði á vegum Evrópusambandsins og yrði ekki fallist á það þyrfti ekki að ræða önnur samningsmarkmið því Íslendingar vilji ekki taka þátt í beinum hernaði.

Skýr svör verða að koma frá utanríkisráðherra

Hann sagði mikilvægt að íslenskur almenningur fengi skýr svör um það hvort aðild að Evrópusambandinu eða dýpra varnarsamstarf gæti síðar leitt til þátttöku Íslendinga í hernaðaraðgerðum erlendis. Stefán sagði að ef Ísland færi einhvern tíma í Evrópusambandið ætti landið að setja skýr skilyrði um að íslenskir ríkisborgarar yrðu ekki hluti af herafla á vegum sambandsins. Að öðrum kosti gæti Ísland í fyrsta sinn orðið beinn þátttakandi í hernaðarátökum erlendis.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila