
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Eirík S. Svavarsson, hæstaréttarlögmann og varaþingmann Miðflokksins, í síðdegisútvarpinu, um stefnu ESA til EFTA dómstólsins, vegna bókunar 35 og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við ESB á Íslandi. Eiríkur sagði stjórnvöld hafa beina skyldu til að taka mið af niðurstöðu kjósenda og verja stöðu Íslands fyrir EFTA-dómstólnum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Tímasetningin setur málið í annað samhengi
Arnþrúður spurði hvort tímasetning máls ESA, um mánuði eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna, gæti tengst niðurstöðu hennar.
Eiríkur sagði tímasetninguna mjög athyglisverða og að þjóðaratkvæðagreiðslan setti bókun 35 í allt annað samhengi. Þar hefði íslenska þjóðin sjálf tekið afstöðu til framtíðarstefnu landsins gagnvart Evrópusambandinu.
Hann vísaði til mikillar kjörsóknar og sagði niðurstöðuna skýra. Spurningin hefði snúist um hvort hefja ætti á ný viðræður við Evrópusambandið og niðurstaðan hefði verið sú að ekki ætti að fara þá leið.
Þjóðin kom sjálf að ákvörðuninni
Eiríkur lýsti íslensku þjóðinni í þessu samhengi sem stjórnarskrárgjafanum. Bókun 35 sneri að hans mati einnig að grundvallaratriðum stjórnskipunarinnar og stöðu löggjafarvaldsins.
Þess vegna væri ekki hægt að líta fram hjá þjóðaratkvæðagreiðslunni þegar ákvörðun væri tekin um næstu skref vegna kröfu ESA.
Að hans mati væri ekki rökrétt að þjóðin hafnaði áframhaldandi viðræðum við ESB en stjórnvöld héldu samt áfram með breytingar sem færðu EES-reglum sterkari réttaráhrif gagnvart íslenskum lögum.
Stjórnvöld eigi að taka til varna
Þar sem ESA hefði nú sjálft höfðað samningsbrotamál væri rétta viðbragðið að fara með málið fyrir EFTA-dómstólinn og verja íslensku leiðina.
Eiríkur sagði stjórnvöld nánast hafa beina skyldu til þess. Þau ættu að taka eðlilegt tillit til niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og þess meirihluta sem þar hefði hafnað þeirri vegferð sem kosið var um.
Í stað þess að samþykkja frumvarpið um bókun 35 til að fá ESA til að falla frá málinu ætti Ísland að reka málið af fullum krafti og fá niðurstöðu um þau grundvallaratriði sem ágreiningurinn snýst um.
Ríkisstjórnin fékk sín svör
Eiríkur beindi þessu einnig sérstaklega að Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og ríkisstjórninni.
Hann sagði utanríkisráðherra hafa efnt til þjóðaratkvæðagreiðslunnar og bæði hún og ríkisstjórnin hefðu fengið svör kjósenda.
Þeim bæri því að vinna áfram eftir þeim áherslum sem íslenska þjóðin hefði lagt með atkvæði sínu. Í þeirri stöðu sem nú væri komin upp ætti ekki að gefast upp fyrir kröfum ESA heldur láta reyna á málið fyrir þeim dómstóli sem hefði vald til að skera úr ágreiningnum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
