Stjórnvöld og Gamli Nói hvetja landsmenn til að undirbúa efri árin

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur hrundið af stað vitundarvakningu þar sem landsmenn eru hvattir til að huga tímanlega að heilsu sinni, félagslegum tengslum og virkni á efri árum. Átakið er hluti af verkefninu Gott að eldast og er ætlað að minna á mikilvægi þess að undirbúa starfslokin og þær breytingar sem fylgja nýju æviskeiði.

Leikarinn Sigurður Sigurjónsson bregður sér í gervi Gamla Nóa í kynningarefni átaksins og sýnir á léttan hátt hvernig fólk getur undirbúið efri árin. Ingeborg frænka kemur einnig við sögu.

Dagleg hreyfing og félagsleg tengsl skipta máli

Meginboðskapur átaksins er að fólk geri daglega eitthvað sem styrkir líkamann, örvar hugann og eflir félagsleg tengsl.

Regluleg hreyfing, svo sem gönguferðir og sund, getur verið mikilvægur þáttur í undirbúningnum. Einnig er hvatt til þess að fólk læri eitthvað nýtt, takist á við krefjandi verkefni og rækti sambandið við vini og fjölskyldu.

Áhugamál og þátttaka í félagsstarfi geta jafnframt veitt fólki gleði, tilgang og tækifæri til að viðhalda virkni þegar starfsævinni lýkur.

Miklar breytingar fylgja starfslokum

Þegar fólk hættir að vinna geta orðið verulegar breytingar á daglegum venjum og félagslegum samskiptum. Því er lögð áhersla á að undirbúningurinn hefjist löngu fyrir starfslok.

Með því að byggja upp félagsleg tengsl, finna sér áhugamál og tileinka sér heilsusamlegar venjur á meðan fólk er enn á vinnumarkaði er hægt að leggja grunn að innihaldsríku lífi á efri árum.

Efri árin bjóða upp á ný tækifæri

Í átakinu er bent á að efri árin, sem einnig eru nefnd silfurskeiðið, geti falið í sér ný verkefni og tækifæri.

Rétt eins og fólk undirbýr sig fyrir nýtt starf er mikilvægt að undirbúa það æviskeið sem tekur við þegar starfsævinni lýkur. Markmiðið er að hvetja landsmenn til að líta á efri árin sem tímabil þar sem áfram sé hægt að njóta lífsins, læra nýja hluti og taka virkan þátt í samfélaginu.

Hér að neðan má sjá myndband þar sem Siggi Sigurjóns bregður sér í hlutverk Gamla Nóa.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila