
Ný upplýsingagátt um almyrkvann 12. ágúst hefur verið opnuð á Ísland.is þar sem almenningi verður veitt yfirlit yfir allt sem snýr að viðburðinum, allt frá bestu útsýnisstöðum til umferðartakmarkana og öryggisupplýsinga. Á vefnum má finna upplýsingar um hvenær almyrkvinn verður sýnilegur, hvernig best sé að fylgjast með honum og hvaða ráðstafanir verði gerðar vegna aukins álags á samgöngur og útivistarsvæði. Smella má hér til þess að skoða upplýsingagáttina.
Upplýsingar um lokanir og umferð
Fram kemur að þar verði einnig birtar upplýsingar um mögulegar lokanir gatna og aðrar takmarkanir á umferð vegna almyrkvans. Þá verða þar tenglar á frekari upplýsingar frá viðbragðsaðilum og markaðsstofum landshluta á almyrkvasvæðinu sem hafa unnið með sveitarfélögum að undirbúningi fyrir daginn. Vefurinn verður uppfærður reglulega fram að almyrkvanum og eru landsmenn hvattir til að fylgjast vel með leiðbeiningum sem þar verða birtar.
Íbúar hvattir til að fylgjast með að heiman
Stýrihópur sem forsætisráðherra skipaði hefur unnið að því að safna upplýsingunum saman. Yfirvöld gera ráð fyrir miklu álagi á samgöngur, útivistarsvæði og viðbragðsaðila þann 12. ágúst. Íbúar á suðvesturhorni landsins eru því hvattir til að fylgjast með almyrkvanum heima hjá sér ef mögulegt er og leggja þannig sitt af mörkum til að draga úr umferð og stuðla að almannaöryggi.
Stjörnu-Sævar stjórnvöldum innan handar
Jafnframt hefur verið skrifað undir samning við Sævar Helga Bragason, oft kallaðan Stjörnu-Sævar, um ráðgjöf til stjórnvalda varðandi fræðslu og miðlun upplýsinga um almyrkvann og undirbúning vegna hans.
