
Dómsmálaráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, Samtökin ’78, Samtök atvinnulífsins og heildarsamtök launafólks hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf sem miðar að því að bæta stöðu hinsegin fólks á íslenskum vinnumarkaði. Viljayfirlýsingin var undirrituð í Iðnó á viðburði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ í tilefni Hinsegin daga. Samstarfið á að efla jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á vinnumarkaði.
Segir halla á efnahagslega stöðu hinsegin fólks
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir halla á efnahagslega stöðu hinsegin fólks á Íslandi og að mismunun á vinnumarkaði sé hluti vandans.
„Sem ráðherra jafnréttismála stend ég þétt við bakið á hinsegin fólki á Íslandi. Samstarf verkalýðshreyfingarinnar, atvinnulífsins og stjórnvalda mun skipta sköpum við að tryggja raunverulegt jafnrétti á vinnumarkaði,“ segir Þorbjörg.
Aðgerðarhópur þrói fræðslu og verkfæri
Stofnaður verður sérstakur aðgerðarhópur sem á að þróa fræðsluefni, verkfæri og aðgerðir fyrir vinnustaði. Einnig á að auka þekkingu á stöðu hinsegin fólks með rannsóknum og greiningum.
Vinnan mun meðal annars byggja á reynslu af Hinsegin vottun Samtakanna ’78 og leiðbeiningum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um inngildingu hinsegin fólks á vinnumarkaði.
Markmiðið er að starfsfólk upplifi öryggi og vellíðan á vinnustöðum en samkvæmt viljayfirlýsingunni geti það jafnframt stuðlað að betri árangri vinnustaða og haft jákvæð áhrif á samfélagið.
Jafnréttisbaráttan viðvarandi verkefni
Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir að með yfirlýsingunni skuldbindi aðilar sig til að vinna saman að bættri stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði.
„Baráttan fyrir jafnrétti er viðvarandi verkefni og ég er stoltur af því að fá að taka þátt í henni. Ég er sannfærður um að vinnan fram undan muni skila raunverulegum árangri,“ segir Ragnar Þór.
