Stórveldin 3 móta nýtt valdakerfi heimsins

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, í síðdegisútvarpinu í dag, á Útvarpi Sögu í tilefni af útkomu nýrrar bókar hans, Vegferð um veröldina, þar sem hann fjallar um alþjóðlegt samstarf sitt og friðarbaráttu á tímum kalda stríðsins. Ólafur Ragnar tengdi reynslu sína af samskiptum við leiðtoga stórveldanna við nýja heimsmynd sem hann telur vera að mótast. Hann sagði leiðtogafund Donalds Trump, Vladimírs Pútíns og Xi Jinping í Kína marka grundvallarbreytingu á alþjóðlegu valdakerfi þar sem Bandaríkin, Kína og Rússland mynduðu nýtt æðsta stig í samskiptum ríkja. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Nýtt valdakerfi tekur við af hefðbundnu alþjóðasamstarfi

Ólafur Ragnar hafnaði þeirri túlkun að fundurinn í Kína, með XI Jingping, Trump og Pútín, hefði fyrst og fremst verið táknræn myndataka leiðtoganna. Hann sagði það lýsa vanþekkingu á alþjóðamálum að gera lítið úr mikilvægi slíks fundar.

Undanfarna áratugi hefði alþjóðakerfið byggst á fjölþjóðlegu samstarfi, stofnunum og reglum um samskipti ríkja. Nú væru hins vegar að verða breytingar þar sem 3 öflug ríki mynduðu nýjan vettvang á æðsta stigi valdakerfis heimsins.

Bandaríkin væru valdamesta ríki heims, Rússland eitt helsta kjarnorkuveldið og Kína stefndi að því að verða eitt öflugasta hagkerfi veraldar. Leiðtogarnir kæmu því ekki saman eingöngu sem einstaklingar heldur sem fulltrúar ríkja sem hefðu burði til að móta framtíð alþjóðamála.

Kjarnorkuváin komin aftur í forgrunn

Arnþrúður vakti sérstaka athygli á því að leiðtogarnir hefðu í sameiginlegri yfirlýsingu tekið upp nauðsyn þess að draga úr kjarnorkuhættu og hindra frekari útbreiðslu kjarnorkuvopna.

Ólafur Ragnar sagði það afar mikilvægt að baráttan gegn útbreiðslu kjarnorkuvopna væri 1 af 4 meginatriðum sem leiðtogarnir hefðu tekið til umfjöllunar.

Hann benti á að kjarnorkuvopn væru ekki lengur eingöngu í höndum þeirra ríkja sem hefðu átt þau á tímum kalda stríðsins. Indland, Pakistan og Norður-Kórea hefðu bæst í hóp kjarnorkuvelda og ótti við frekari útbreiðslu vopnanna hefði aukist.

Þessi þróun minnti á þær hættur sem heimsbyggðin stóð frammi fyrir þegar Bandaríkin og Sovétríkin kepptust við að þróa sífellt öflugri gereyðingarvopn.

Stórveldin fara í auknum mæli sínu fram

Ólafur Ragnar sagði nýja heimsmynd einkennast af því að öflugustu ríkin vildu í auknum mæli ráða ferðinni óháð hefðbundnum alþjóðlegum reglum og venjum.

Hann vísaði til umræðu fræðimanna um vaxandi áhrif stórveldanna og sagði þróunina þegar hafna, hvort sem smærri ríkjum líkaði betur eða verr.

Þótt menn teldu þessa breytingu hættulega væri nauðsynlegt að átta sig á henni og taka mið af því hvernig valdahlutföll í heiminum væru að breytast.

Reynslan frá kalda stríðinu sýnir að hægt er að hafa áhrif

Ólafur Ragnar rifjaði upp hvernig fámennur hópur stjórnmálamanna hefði á 9. áratug byggt upp samstarf við leiðtoga víða um heim til að þrýsta á Bandaríkin og Sovétríkin um að draga úr kjarnorkuvígbúnaði. Meðal þeirra sem komu að samstarfinu voru Indira Gandhi og Olof Palme.

Hann fjallar ítarlega um þetta starf í bókinni Vegferð um veröldina og hvernig reynslan af samskiptum við alþjóðlega leiðtoga nýttist honum síðar í forsetaembættinu.

Hann sagði þá reynslu sýna að jafnvel þegar fáein stórveldi réðu mestu væri hægt að ná árangri með markvissum tillögum, þekkingu og alþjóðlegu samstarfi.

Arnþrúður benti á hliðstæður milli þessarar baráttu og núverandi stöðu heimsmála. Ólafur Ragnar tók undir að reynslan frá kalda stríðinu ætti enn erindi við samtímann, enda væri hægt að finna lausnir þótt alþjóðamálin virtust komin í öngstræti.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila