
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Símon Þorkel Símonarson Olsen, íbúa í Gufunesi í þættinum Skipulagsmál, um almenningssamgöngur og aðgengi að Jöfurbási í Gufunesi. Símon sagði þjónustuna sem kölluð hefur verið strætó í hverfinu í raun vera leigubíl sem flytur fólk upp í Spöng. Ferðina þarf að panta með 30 mínútna fyrirvara og sé hringt 29 mínútum áður er beiðninni hafnað. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Leigubíll flytur íbúana upp í Spöng
Símon sagði svokallaðar strætóferðir í hverfinu ekki vera hefðbundinn strætisvagn heldur leigubíl sem sæki farþega og flytji þá upp í Spöng. Ef 6 eða 7 manns bíði en bíllinn sé aðeins með 4 sæti komist ekki allir með.
Hann gagnrýndi sérstaklega að íbúar þyrftu að skipuleggja ferðir sínar út frá svo takmarkaðri þjónustu þegar margir væru til dæmis á leið í vinnu á sama tíma.
29 mínútur duga ekki
Til að fá ferð þurfa íbúar að hringja í Strætó með hálftíma fyrirvara og óska eftir bíl. Símon sagði leigubílstjórana sjálfa hins vegar oft ekki fá beiðnina fyrr en 6 eða 7 mínútum áður en sækja ætti farþegana.
Hann sagðist hafa fengið synjun þegar hann hringdi 29 mínútum fyrir áætlaða brottför. Þá væri hann kominn inn fyrir tímamörkin og þyrfti að bíða eftir næstu ferð.
Strætó 31 fer ekki nógu langt
Símon benti á að leið 31 aki inn í Gufunes og að Gufunesbænum.
Hann spurði hvers vegna vagninn gæti ekki haldið áfram inn í hverfið og sótt íbúana. Honum myndi nægja að komast að Olís við Gullinbrú þar sem hægt væri að skipta yfir í aðrar leiðir. Að hans sögn er það aðeins þetta eina viðbótarstopp sem vantar til að tengja hverfið betur við hefðbundið leiðakerfi Strætó.
Engin gangstétt meðfram veginum
Vandinn einskorðast ekki við strætóþjónustuna.
Engin gangstétt er meðfram veginum frá Olís og inn í hverfið. Þar aka meðal annars sorpbílar, kranabílar og þungaflutningabílar vegna framkvæmda. Símon sagði veginn svo þröngan að þegar tveir bílar mætast þurfi gangandi vegfarendur stundum að stíga út í drullu til að víkja.
Bæði börn og fullorðnir ganga þessa leið og Símon sagðist undrandi á því að ekki hefði þegar orðið slys.
Íbúar lokuðust inni þegar eldur kom upp
Símon sagði hættuna hafa komið skýrt í ljós þegar eldur kom upp fyrir aftan hverfið. Þá lokaðist aðkoman og fólk komst hvorki heim né út úr Gufunesi.
Vegurinn er mjór og blindhæð á honum og Símon lýsti aðstæðunum sem stórhættulegum. Hann vill að Reykjavíkurborg ráðist strax í úrbætur, leggi gangstétt meðfram veginum og komi á reglulegum strætóferðum í stað núverandi fyrirkomulags.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
