Stríðsástand í Frakklandi sem er að breiðast út

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Arnar Þór Jónsson lögmann og fyrrverandi héraðsdómara í síðdegisútvarpinu um átökin í Frakklandi og ólgu víðar í Evrópu. Arnar sagði ástandið í Frakklandi komið langt út fyrir hefðbundin mótmæli eða óeirðir og þaðan sýndu í raun stríðsástand sem nú væri farið að breiðast út. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Átökin komin langt út fyrir hefðbundin mótmæli

Arnar sagði ekki lengur nægja að lýsa því sem væri að gerast í Frakklandi sem mótmælum. Hann sagði jafnvel orðið óeirðir ekki ná utan um ástandið og vísaði til upptaka þar sem ráðist væri að lögreglu, rúður brotnar og verslanir rændar.

Hann sagði myndirnar vera þess eðlis að orðið stríðsástand lýsti stöðunni betur. Að hans mati væru þeir sem tækju þátt heldur ekki eingöngu námsmenn eða fólk sem hefði komið út á götur vegna hefðbundinna mótmæla.

Arnþrúður tók undir að ástandið væri komið á allt annað stig en upphafleg mótmæli og sagði fjölbreytta hópa hafa blandast inn í átökin.

Merki um skipulagningu á bak við átökin

Arnþrúður sagði þróunina bera merki þess að átökin væru skipulagðari en þau hefðu verið í upphafi.

Arnar vísaði í upptökur sem hann hafði séð á X skömmu fyrir viðtalið þar sem vörubretti með miklu magni af tómum flöskum hefðu verið skilin eftir á götu í Frakklandi. Hann velti því upp hver hefði komið slíku magni á staðinn og í hvaða tilgangi.

Hann tók þó sérstaklega fram að hann vissi ekkert um þann aðila sem birti upptökurnar og þekkti ekki bakgrunn hans. Hann vísaði aðeins til myndefnisins sem ástæðu fyrir því að honum fyndist rétt að skoða nánar hvort skipulagning lægi að baki hluta átakanna.

Ólgan nær út fyrir Frakkland

Arnþrúður benti á að átökin væru farin að breiðast út annars staðar í Evrópu og nefndi meðal annars Belgíu, Austurríki og Ítalíu. Hún sagði þróunina benda til þess að vandinn væri ekki bundinn við Frakkland eitt.

Arnar tengdi átökin við víðari samfélagslegan vanda í Frakklandi og sagði mikla spennu hafa byggst upp vegna innflytjendamála og þess að hluti fólks hefði ekki aðlagast frönsku samfélagi.

Hann gagnrýndi einnig þá mynd sem hann taldi Íslendinga hafa fengið af frönskum stjórnmálum og sagði umræðuna hér heima hafa verið of þrönga til að almenningur áttaði sig á umfangi vandans.

Ísland illa búið undir sambærilegt ástand

Arnar sagði Ísland vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu ef sambærilegt ástand kæmi upp hér.

Hann sagði lögreglu og Landhelgisgæslu hafa fengið of lítið fjármagn á sama tíma og miklir fjármunir hefðu farið í varnatengdan stuðning erlendis. Að hans mati væri Ísland því ekki nægilega vel í stakk búið til að bregðast við ef alvarleg og umfangsmikil óeirða- eða átakaalda kæmi upp hér.

Ástandið í Frakklandi væri hins vegar orðið svo alvarlegt að ekki væri lengur rétt að horfa á það sem venjuleg mótmæli heldur stríðsástand sem gæfi tilefni til að fylgjast mjög náið með þróuninni í Evrópu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila