Stykja verkefni í þágu psoriasis- og exemsjúklinga

kthorsamningurKristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra og Ingvar Ágúst Ingvarsson, formaður Spoex; Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga, undirrituðu í dag samkomulag um 25 milljóna króna styrk sem samtökin fá til að styrkja ýmis hagsmunamál psoriasis- og exemsjúklinga.
Í maí sl. gerðu Bláa lónið og Sjúkratryggingar Íslands með sér samning þess efnis að Bláa lónið veitti sjúkratryggðum psoriasissjúklingum á Íslandi meðferð þeim að kostnaðarlausu og án opinberrar greiðsluþátttöku. Heilbrigðisráðherra ákvað þá að nýta fjármuni sem spöruðust hjá hinu opinbera vegna þessa til að styrkja ýmis hagsmunamál psoriasis- og exemsjúklinga í samræmi við áherslur samtaka þeirra. Samkvæmt samkomulagi um styrkinn skal nýta hann til eftirtalinna verkefna:
  • Þarfagreiningar á stöðu psoriasis-, psoriasisgigtar- og exemsjúklinga á Íslandi,
  • Styrkingu þjónustu við sjúklinga og bættri aðstöðu í húsnæði Spoex að Bolholti 6,
  • Í vísindasjóð Spoex,
  • Til endunýjunar á fræðsluefni Spoex um psoriasis, psoriasisgikt og exem
  • Að hefja undirbúning að gerð klínískra leiðbeininga um psoriasis og psoriasisgigt fyrir íslenska sjúklinga.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila