Styrkja á raforkuflutningskerfið á Norðausturlandi og Vestfjörðum

Stjórnvöld leggja áherslu á aukna flutningsgetu raforku milli landshluta og styrkingu raforkukerfisins á Norðausturlandi og Vestfjörðum. Markmiðið er að bæta afhendingaröryggi, mæta vaxandi raforkuþörf og styðja við orkuskipti og atvinnuuppbyggingu. Drög að umhverfismati á stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfisins hafa nú verið birt í Samráðsgátt, þar sem almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Aukin flutningsgeta milli landshluta

Í stefnu stjórnvalda er lögð áhersla á að raforkuflutningskerfið verði betur í stakk búið til að mæta aukinni eftirspurn eftir rafmagni. Sérstaklega er horft til þess að styrkja tengingar milli landshluta og bæta afhendingaröryggi á svæðum þar sem takmarkanir flutningskerfisins geta haft áhrif á atvinnustarfsemi og orkuskipti.

Norðausturland og Vestfirðir eru sérstaklega nefnd í stefnunni sem landshlutar þar sem styrkja þurfi raforkuinnviði. Jafnframt er lögð áhersla á að uppbygging raforkuvinnslu, flutningsmannvirkja og raforkunotkunar verði betur samhæfð svo fjárfestingar í kerfinu nýtist sem best.

Flutningslínum haldið við jaðar hálendisins

Við uppbyggingu flutningskerfisins verður einnig horft til þess að takmarka áhrif raforkumannvirkja á náttúru og landslag. Í stefnunni er sérstaklega tekið fram að þegar óhjákvæmilegt er að leggja flutningslínur yfir hálendi landsins skuli þeim haldið við ytri mörk miðhálendisins.

Markmiðið er að draga úr röskun á víðernum og viðkvæmum náttúrusvæðum samhliða því að tryggja nauðsynlega uppbyggingu raforkukerfisins. Staðsetning og útfærsla einstakra framkvæmda mun ráða miklu um hversu umfangsmikil umhverfisáhrifin verða.

Umhverfismat bendir til jákvæðra áhrifa á atvinnulíf

Samkvæmt niðurstöðum umhverfismatsins getur uppbygging flutningskerfisins haft jákvæð áhrif á samfélag og atvinnulíf með auknu afhendingaröryggi og sterkari raforkuinnviðum. Bætt flutningsgeta getur jafnframt auðveldað orkuskipti og stuðlað að minni losun gróðurhúsalofttegunda.

Á móti kemur að framkvæmdir við flutningsmannvirki geta haft neikvæð áhrif á lífríki, vatn, landslag og víðerni. Í matinu eru þau áhrif talin takmörkuð, en umfang þeirra ræðst að verulegu leyti af því hvar mannvirkin verða staðsett og hvernig staðið verður að framkvæmdum.

Ráðherra vill tryggja raforkuöryggi án þess að slaka á náttúruvernd

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, leggur áherslu á að styrking flutningskerfisins sé nauðsynleg svo íbúar og fyrirtæki um allt land hafi öruggan aðgang að raforku. Enginn landshluti eigi að sitja eftir þegar kemur að orkuskiptum og atvinnuuppbyggingu.

Jafnframt verði að tryggja að hraðari uppbygging leiði ekki til þess að slakað verði á kröfum um náttúruvernd eða samráð við almenning og hagsmunaaðila. Umhverfismatið eigi að auðvelda stjórnvöldum að vega saman þessa hagsmuni áður en ákvarðanir um framkvæmdir verða teknar.

Umhverfismatið er unnið samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021, undir umsjón umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins með aðstoð VSÓ ráðgjafar. Við gerð þess var tekið mið af athugasemdum sem bárust þegar drög að stefnunni voru áður kynnt í Samráðsgátt.

Smelltu hér til þess að skoða málið í samráðsgátt

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila