
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson og Sigurð Örn Hilmarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, í þættinum Skipulagsmál, um skipulags- og samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu. Guðlaugur sagði unnið með um 30 ára gamlar hugmyndir að Sundabraut þótt margt hefði breyst og framkvæmdin myndi ekki ná markmiðum sínum ef farið yrði óbreytt eftir þeim. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Forsendurnar þurfa að endurspegla breyttar aðstæður
Guðlaugur sagði ríkið gegna mikilvægu hlutverki í samgöngu- og skipulagsmálum á höfuðborgarsvæðinu. Sameiginleg skipulagning ríkis og sveitarfélaga væri eðlileg en forsendurnar yrðu að vera raunhæfar.
Sundabrautin væri mikilvægt dæmi. Þar væri enn unnið með hugmyndir sem væru um 30 ára gamlar þótt borgin, byggðin og samgöngurnar hefðu tekið miklum breytingum á þeim tíma.
Ef framkvæmdin yrði útfærð óbreytt á þeim grunni væri hætta á að hún skilaði ekki þeim árangri sem henni væri ætlað að ná.
Lífsgæði í allri borginni undir
Guðlaugur lagði áherslu á að Sundabrautin væri ekki eingöngu hagsmunamál Grafarvogs. Útfærsla hennar gæti haft áhrif á lífsgæði íbúa víða um Reykjavík.
Hann ítrekaði mikilvægi þess að skipulag hverfa tæki mið af því hvers vegna fólk hefði valið að búa þar og þeim lífsgæðum sem fyrir væru. Í Grafarvogi hefði til dæmis verið horfið frá ýmsum hugmyndum um mikla þéttingu eftir mótmæli íbúa.
Sama grunnsjónarmið ætti við um stórar samgönguframkvæmdir. Þær þyrftu að vera lagaðar að núverandi aðstæðum en ekki aðeins fylgja áætlunum sem hefðu orðið til áratugum fyrr.
Ábendingarnar ræddar við samgönguyfirvöld
Hjördís leitaði nánari skýringar á því hvort Guðlaugur væri að gagnrýna Sundabrautina sjálfa eða núverandi útfærslu hennar.
Hann lagði áherslu á að framkvæmdin ætti að verða að veruleika en að gera þyrfti hana rétt miðað við stöðuna eins og hún væri nú.
Guðlaugur sagðist hafa rætt málið við Vegagerðina og samgönguyfirvöld í mörg ár og fundað sérstaklega um þau atriði sem hann teldi þurfa að endurskoða.
Hann hefði í upphafi jafnvel gert ráð fyrir að honum yrði bent á að hann misskildi einhver atriði en svo hefði ekki verið. Fulltrúar Vegagerðarinnar og fyrrverandi borgaryfirvalda hefðu síðar komið á íbúafundi í Laugardal og Grafarvogi og bent á sömu atriði.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
