Svandís Svavarsdóttir úthlutaði rúmum hálfum milljarði úr matvælasjóði

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur úthlutað um 577 milljónum króna úr Matvælasjóði til verkefna á sviði matvælaframleiðslu og nýsköpunar. Alls hljóta 53 verkefni styrk en 177 umsóknir bárust til sjóðsins.

„Ég hef séð kraftinn sem býr í framleiðendum matvæla hér á landi og úthlutun úr Matvælasjóði er mikilvægur liður í því að styðja við nýsköpun í matvælaframleiðslu. Það gleður mig sérstaklega að sjá að hlutföll á milli kynja eru nær jöfn,“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Matvælasjóður veitir styrki í fjórum styrkjaflokkum: BáruKelduAfurð og Fjársjóði.

Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkþegar geta verið fyrirtæki sem stofnuð eru á síðustu fimm árum. Einnig frumkvöðlar sem vilja þróa hugmynd, hráefni eða aðferðir sem tengjast íslenskri matvælaframleiðslu.

Kelda styrkir verkefni sem miða að því að afla nýrrar þekkingar sem styður við markmið sjóðsins um nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar. Styrkveitingar miða að því að gefa styrkþegum tækifæri til að móta og þróa afurðir úr hráefnum sem falla til við matvælaframleiðslu og stuðla þar með að verðmætasköpun.

Fjársjóður styrkir verkefni sem hafa það markmiði að styrkja markaðsinnviði og stuðla að markaðssókn afurða tengdum íslenskri matvælaframleiðslu.

Í tilkynningu segir að hlutverk Matvælasjóðs sé að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla.

Smelltu hér til þess að sjá hverjir hlutu styrki úr sjóðnum

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila