Sverrir: ESB-aðild myndi auka áhrif Íslands á regluverk og efnahagsmál

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sverri Pál Einarsson, formann Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, í síðdegisútvarpinu um efnahagsleg áhrif hugsanlegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Sverrir sagði að Ísland hefði takmörkuð áhrif á stóran hluta þess regluverks sem landið innleiðir í gegnum EES-samninginn og taldi að aðild að Evrópusambandinu myndi færa landinu aukin áhrif, auðvelda erlendar fjárfestingar og styrkja samkeppnisstöðu þess. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Ísland eigi að fá sæti við ákvörðunaborðið

Aðspurður um ETS-kerfið og áhrif EES-reglna sagði Sverrir að Ísland hefði ekki notið nægilegra áhrifa við mótun reglna sem tækju mið af aðstæðum á meginlandi Evrópu fremur en íslenskum aðstæðum. Hann nefndi kolefnisgjöld á flugi sem dæmi og taldi að sérstaða Íslands hefði betur komið til greina ef landið hefði átt aðild að ákvörðunartökunni.

Í framhaldinu benti Pétur á að Alþingi gæti formlega hafnað innleiðingu EES-gerða. Sverrir sagði að þótt sá möguleiki væri fyrir hendi væri Ísland í reynd skuldbundið til að innleiða stóran hluta regluverksins án þess að hafa sömu áhrif á mótun þess og aðildarríki Evrópusambandsins.

Evran aðeins einn þáttur

Þegar umræðan beindist að evrunni sagði Sverrir að upptaka sameiginlegs gjaldmiðils væri aðeins einn mögulegur ávinningur af ESB-aðild. Að hans mati skipti ekki síður máli að Ísland fengi aðkomu að mótun regluverks, aukið vægi í samstarfi Evrópuríkja, betri aðgang að styrkjum og sterkari stöðu í öryggis- og efnahagsmálum.

Hann benti jafnframt á að aðild að Evrópusambandinu þýddi ekki sjálfkrafa að Ísland tæki upp evru þar sem nokkur aðildarríki væru enn með eigin gjaldmiðla.

Telur ESB-aðild auðvelda erlendar fjárfestingar

Síðar í viðtalinu ræddu þeir áhrif ESB-aðildar á erlendar fjárfestingar. Sverrir sagði að íslenska krónan og séríslenskt regluverk gætu verið hindrun fyrir fyrirtæki sem vildu hefja starfsemi hér á landi. Hann taldi að samræmt regluverk og nánari tengsl við innri markað Evrópusambandsins myndu auðvelda fyrirtækjum að fjárfesta á Íslandi.

Pétur velti því upp að bandarísk fyrirtæki hefðu þegar fjárfest mikið hér á landi þrátt fyrir krónuna. Sverrir sagðist ekki hafa tölulegan samanburð á fjárfestingum frá Evrópu og Bandaríkjunum en taldi engu að síður að einfaldara regluverk og aukin samræming myndu stuðla að meiri fjárfestingu frá Evrópu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila