
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Sverri Pál Einarsson, formann Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, í síðdegisútvarpinu um rök hans fyrir því að Ísland eigi að hefja að nýju vegferð um aðild að Evrópusambandinu. Sverrir sagði að aðild myndi styrkja stöðu Íslands á alþjóðavettvangi, efla samstarf við önnur lýðræðisríki og auka möguleika landsins til að gæta hagsmuna sinna í breyttu alþjóðlegu umhverfi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Samstarf við fleiri bandamenn
Aðspurður um hvers vegna hann vilji að Ísland gangi í Evrópusambandið segir Sverrir að 2 atriði vegi þar þyngst. Annars vegar telji hann mikilvægt að Ísland starfi náið með fleiri þjóðum sem byggi á sambærilegum lýðræðislegum gildum og hins vegar að aðild geti haft jákvæð efnahagsleg áhrif.
Hann segir að alþjóðasamfélagið hafi breyst mikið á síðustu árum og sífellt meiri spenna milli ríkja sýni mikilvægi þess að Ísland eigi öflugt samstarf við sem flesta trausta bandamenn.
Danmörk nefnd sem dæmi
Þegar Pétur beinir umræðunni að öryggis- og varnarmálum nefnir Sverrir stöðu Danmerkur vegna Grænlands. Hann segir danska ráðamenn hafa bent á að aðild landsins að Evrópusambandinu hafi reynst mikilvægt bakland þegar tekist var á við viðkvæm utanríkismál og samstaða annarra aðildarríkja hafi styrkt stöðu Danmerkur.
Pétur bendir jafnframt á að Bandaríkin hafi lengi verið helsti bandamaður Íslands. Sverrir tekur undir það og segir Bandaríkin hafa reynst Íslandi mikilvægur stuðningsaðili í gegnum tíðina. Hann telur þó að nýleg þróun í alþjóðamálum sýni að skynsamlegt sé fyrir Ísland að treysta jafnframt tengsl sín við fleiri vinaþjóðir.
Byggja þarf upp traust
Spurður hvort hann treysti Evrópu frekar en Bandaríkjunum svarar Sverrir því til að hann líti enn á Bandaríkin sem mikilvægan bandamann. Hann segir hins vegar að umræða og framganga bandarískra stjórnvalda gagnvart Danmörku hafi orðið til þess að fleiri velti fyrir sér hvernig samskipti ríkja geti breyst á skömmum tíma.
Að hans mati tekur langan tíma að byggja upp traust milli ríkja en það geti rofnað hratt ef samskiptin versna. Þess vegna telur hann mikilvægt að Ísland byggi utanríkisstefnu sína á víðtæku samstarfi við fleiri ríki sem deili sömu lýðræðislegu grunngildum.
Umræðan snýst um framtíðarstöðu Íslands
Sverrir segir að umræðan um Evrópusambandið snúist ekki eingöngu um efnahagsmál eða gjaldmiðil. Að hans mati sé einnig um að ræða stefnumarkandi ákvörðun um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu og í hvaða samstarfi landið vilji taka þátt í til framtíðar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
