
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún varar við nýrri þróun í fjársvikum þar sem brotamenn hringja nú úr íslenskum símanúmerum og nota talgervla sem tala íslensku til að blekkja fólk.
Segjast vera frá Microsoft
Um er að ræða svik sem hafa verið þekkt um nokkurt skeið. Hringt er í einstaklinga og sá sem er á línunni segist vera frá Microsoft. Viðkomandi heldur því fram að eitthvað sé að tölvu þess sem hringt er í.
Í framhaldinu er fólk leitt í gegnum ferli þar sem búnaður er settur upp í tölvunni. Sá búnaður gerir brotamönnum kleift að komast yfir fjármuni fólks.
Símtölin virðast koma frá Íslandi
Lögregla segir að nú hafi orðið sú breyting á svikunum að bæði sé hringt úr íslenskum símanúmerum og notast við talgervla í samskiptunum. Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi og íslenska er töluð við þann sem reynt er að svíkja.
Þolendur hafi tafarlaust samband við banka og lögreglu
Fólk sem telur sig hafa orðið fyrir svikum af þessu tagi og tapað fjármunum er hvatt til að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf.
Í framhaldinu er fólki bent á að tilkynna málið til lögreglu. Þá minnir lögregla á netbrotagáttina á island.is þar sem hægt er að tilkynna netbrot og tilraunir til slíkra brota.
