Svört skýrsla um áhrif verðtryggingar fæst ekki birt

Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður Flokks fólksins vakti á því athygli í gær í ræðu sinni á þingi að svört skýrsla um áhrif verðtryggingarinnar fáist ekki birt þrátt fyrir að skýrslan hafi verið unnin að beiðni þrettán þingmanna úr fimm flokkum.

Skýrslan var skrifuð af Dr. Ólafi Margeirssyni hagfræðingi og Jacky Mallett, lektor við Háskólann í Reykjavík, en þau skiluðu skýrslunni til félagsmálaráðuneytisins í júní í fyrra en hún hefur ekki enn fengist birt, þrátt fyrir ítrekaða eftirgrennslan Hagsmunasamtaka heimilanna.

Þingmanninn Ásthildi Lóu Þórsdóttur, sem einnig er formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, þraut þolinmæðin í gær og ákvað hún að kunngjöra tilvist skýrslunnar og vitna í kafla hennar um áhrif verðtryggingarinnar á heimilin og hagkerfið.

Samkvæmt því sem Ásthildur Lóa sagði í ræðu sinni er ljóst að skýrslan er óþægileg fyrir stjórnvöld sem hafa varið verðtryggingu á lánum heimilanna með kjafti og klóm, þrátt fyrir loforð um annað.

Einnig mælti þingmaðurinn fyrir rétti neytenda til að breyta úr verðtryggðum lánum í óverðtryggð en í þeirri ræðu komu fram sláandi niðurstöður sem sýna svart á hvítu hve mikil áhrif 3,4% hækkun verðbólgu frá ársbyrjun hefur haft á verðtryggð lán.

Það er mat Ásthildar og Hagsmunasamtaka Heimilanna að almenningur eigi rétt á að sjá skýrsluna, ekki síst þegar litið er til þess hvernig fjármála- og efnahagsráðherra hefur ítrekað vísað til verðtryggðra lána sem „lausnar“ fyrir lántakendur sem ekki ráða við gríðarlegar vaxtahækkanir undanfarinna mánaða.

Að undanförnu hefur mikið farið fyrir umræðum um skýrslur sem stjórnmála og embættismenn hafa komið í veg fyrir að komi fyrir almenningssjónir og er því skýrslan um verðtrygginguna enn eitt dæmið um gögn sem reynt sé að halda frá almenningi.

Heyra má ræðu Áshildar Lóu sem fram fór á þinginu í gær í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila