
Tæpum 10 milljörðum króna var varið í skattaívilnanir og beinan og óbeinan ríkisstuðning við bílaleigufyrirtæki á síðasta kjörtímabili í nafni loftslagsmála. Þrátt fyrir það eru rafbílar aðeins 14% þeirra bíla sem bílaleigur kaupa, á meðan hlutfallið er um 80% hjá einstaklingum og fyrirtækjum öðrum en bílaleigum. Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir stjórnvöld þurfa að leita annarra leiða.
Jóhann Páll greindi frá þessu á kynningarfundi í gær þar sem nýjar tölur um losun gróðurhúsalofttegunda og stöðu loftslagsaðgerða voru kynntar.
Ráðherrann segir rafvæðingu bílaleiguflotans nú eina stærstu áskorunina þegar kemur að því að hraða orkuskiptum í vegasamgöngum.
„Við getum ekki haldið áfram að gefa peninga“
Stjórnvöld hafa látið greina þann stuðning sem runnið hefur til rafbílavæðingar bílaleigufyrirtækja undanfarin misseri.
Niðurstaðan er að á síðasta kjörtímabili hafi samtals tæpum 10 milljörðum króna verið varið í skattaívilnanir og beinan og óbeinan ríkisstuðning við bílaleigufyrirtæki í nafni loftslagsmála.
„Þetta eru mjög miklir peningar, en árangurinn er ekki meiri en þetta. Því verðum við að leita annarra leiða,“ sagði Jóhann Páll.
Starfshópur með fulltrúum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, atvinnuvegaráðuneytis, fjármálaráðuneytis og forsætisráðuneytis vinnur nú að tillögum um hvernig hægt verði að hraða rafvæðingu bílaleiguflotans.
Jóhann Páll segist binda vonir við að hópurinn skili tillögum að öðrum lausnum eins fljótt og mögulegt er.
Rafbílar 80% hjá öðrum kaupendum
Munurinn á bílakaupum bílaleigufyrirtækja og annarra kaupenda er mikill.
Rafbílar eru nú um 80% þeirra nýju bíla sem einstaklingar og fyrirtæki önnur en bílaleigur kaupa. Hjá bílaleigufyrirtækjum er hlutfallið hins vegar aðeins 14%.
Stjórnvöld breyttu vörugjöldum um síðustu áramót til að gera rafbíla hagstæðari í innkaupum. Þá var 800 milljónum króna úthlutað úr Loftslags- og orkusjóði til uppbyggingar hleðsluinnviða um allt land.
Bílaleigurnar hafa mikil áhrif á framboð notaðra bíla
Bílakaup bílaleigufyrirtækja hafa einnig mikil áhrif á hvaða bílar koma síðar á almennan markað hér á landi.
Bílaleigubílar eru stór hluti eftirmarkaðarins og því segir ráðherrann kaup bílaleiganna hafa áhrif á aðgengi tekjulægri hópa að ökutækjum.
Jóhann Páll segir bílaleigufyrirtækin því geta haft veruleg áhrif á hversu hratt orkuskipti verða í íslenska bílaflotanum.
„Þannig að nú eru bílaleigufyrirtækin á Íslandi svolítið í þeirri stöðu að geta annaðhvort verið í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða verið sá geiri sem heldur aftur af orkuskiptum.“
Ráðherrann segist hafa trú á því að bílaleigurnar vilji taka þátt í orkuskiptunum og að stjórnvöld vilji aðstoða þær við það.
„En við getum ekki haldið áfram að gefa peninga,“ sagði Jóhann Páll.
