
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar umfangsmikið fíkniefnamál eftir að þrjár kannabisræktanir voru stöðvaðar á mismunandi stöðum á suðvesturhorni landsins á síðustu dögum. Tæplega 800 kannabisplöntur voru lagðar hald á ásamt öðrum fíkniefnum, fjármunum og ræktunarbúnaði.
Átta húsleitir og átta handteknir
Í tengslum við rannsóknina hefur lögregla framkvæmt átta húsleitir og handtekið átta einstaklinga sem hafa verið yfirheyrðir.
Að mati lögreglu voru ræktanirnar allar nokkuð stórar og bendir rannsókn til þess að kannabisið hafi verið ætlað til sölu og dreifingar.
Rannsókn miðar vel
Rannsókn málsins miðar vel að sögn lögreglu. Embættið naut aðstoðar lögreglunnar á Suðurnesjum og lögreglunnar á Suðurlandi við aðgerðirnar.
Lögreglan segir ekki unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Hvetja almenning til að miðla upplýsingum
Af þessu tilefni minnir lögreglan á upplýsingasíma sinn, 800 5005, þar sem hægt er að koma nafnlaust á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi eða önnur afbrot sem fólk hefur vitneskju um.
