Teitur fylgir nýrri plötu úr hlaði með tónleikum í Tónabíói

Rúnar Þór ræddi við Teit Magnússon, tónlistarmann, í Slappaðu af, um nýju plötuna Ask sem er fjórða sólóplata Teits. Platan var að mestu unnin af Teiti og Hallberg Hallbergssyni í heimastúdíói á Klapparstíg og verður henni fylgt eftir með útgáfutónleikum í Tónabíói laugardaginn 3. október. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Unnin að mestu af tveimur mönnum

Hallberg sá um upptökurnar og lék jafnframt á trommur, gítar, bassa og fleiri hljóðfæri. Teitur sagði þá tvo hafa spilað stærstan hluta plötunnar en Ómar Guðjónsson bættist við í tveimur lögum á pedal steel-gítar.

Teitur sagði vinnuaðferðina hafa hentað vel. Í stað þess að fara með heila hljómsveit inn í hefðbundið hljóðver gátu þeir unnið lögin áfram eftir því sem hugmyndirnar þróuðust og jafnvel tekið nýjar trommur síðar í ferlinu.

Askur inniheldur 8 lög og lýsti Teitur tónlistinni sem folk-rokki með ýmsum áhrifum, meðal annars úr bossa nova.

Völuspá í titillaginu

Titillagið „Askur“ byggir á tveimur erindum úr Völuspá og fjallar um lífsins tré og örlaganornirnar þrjár.

Teitur sagðist ýmist semja textana sjálfur, vinna þá með öðrum eða sækja í gömul og ný ljóð. Honum þætti sérstaklega skemmtilegt hversu mikið nútímafólk gæti enn skilið af meira en þúsund ára gömlum texta Völuspár. Umslag plötunnar fylgir sömu hugmynd. Teitur bað Símon félaga sinn að teikna sig eins og tré þar sem skeggið skýtur rótum og síða hárið breytist í greinar.

Tónleikarnir fara fram 3.október

Útgáfutónleikarnir verða í gamla Vinabæ, nú Tónabíói, laugardaginn 3. október. Teitur syngur og leikur á gítar en með honum verða Birgir Ísleifur Gunnarsson á hljómborð, Orri Páll Dýrason á trommur, Arnar Birgisson á slagverk, Hróðmar Sigurðsson á slide-gítar og Ingvi Rafn Björgvinsson á bassa. Gestir koma einnig fram á trompet og flautu.

Teitur sagði ætlunina vera að nýta gamla bíósalinn vel með myndefni, lýsingu og skreytingum. Plötusnúður verður jafnframt með gamlar 7 tommu plötur í upphitun áður en hljómsveitin stígur á svið.

Salurinn tekur um 200 til 300 manns eftir því hvernig honum er stillt upp og verður bæði hægt að sitja og standa.

Fjórða sólóplatan

Fyrsta sólóplata Teits, 27, kom út árið 2014. Síðar fylgdu Orna og 33 og nú Askur. Hann sagði nýju plötuna vera áframhald á þeirri þróun sem orðið hefði í tónlist hans en ræturnar væru enn þær sömu. Von hans væri að platan höfðaði bæði til þeirra sem hefðu fylgst með honum hingað til og næði jafnframt til nýrra hlustenda.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila